Ef skóli birtist ekki þegar sveitarfélag er valið í umsókninni er innritunartímabil ekki hafið hjá viðkomandi sveitarfélagi. Nánari upplýsingar um innritunartímabil er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins.
Börn byrja í grunnskóla árið sem þau verða sex ára og fá þá úthlutað plássi í sínum hverfisskóla.
Staðfesting á innritun
Forsjáraðilar þurfa að staðfesta innritun barnsins í skólann rafrænt og skrá nauðsynlegar upplýsingar.
Þegar staðfesting liggur fyrir fær forsjáraðili tilkynningu.
Á Mínum síðum geta forsjáraðilar fylgst með innritunarferli barnsins í skólann.
Óskir um annan skóla
Ef þú vilt að barnið þitt fari í annan skóla en hverfisskóla:
hafnar þú innrituninni
og sækir um skólaskipti í framhaldinu
Ekki er tryggt að allir grunnskólar geti tekið við börnum utan skólahverfis og gilda reglur hvers og eins sveitarfélags þar um. Ef takmarka þarf fjölda nemanda í einstaka skólum eiga nemendur ávallt forgang að sínum hverfisskóla.
Þjónustuaðili
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu