Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Innflutningur ökutækis á íslenskum númerum

Ökutæki á íslenskum skráningarnúmerum má flytja aftur til Íslands án greiðslu innflutningsgjalda (vörugjald, virðisaukaskattur og úrvinnslugjald).

Undantekningar

Greiða þarf innflutningsgjöld ef:

  • gjöld voru endurgreidd við útflutning

  • unnið var við ökutækið erlendis sem eykur verðmæti þess

    • bíll gerður upp

    • búið er að bæta við aukabúnaði svo sem nýjar felgur, innrétting eða annað slíkt

Skráning ökutækis

Ekki þarf að sækja um skráningu ökutækis nema það hafi verið afskráð við brottför.

Tollskoðun

Við komuna til landsins þarf ferðamaðurinn, ökutækið og farangur að fara í almenna tollskoðun.

Varningur um borð

Greiða þarf innflutningsgjöld af varningi í ökutækinu sem er umfram farangursheimild ferðamanns.

Sjá nánar um hámarks farangursheimild ferðamanna á leið til Íslands.

Kílómetragjald

Ekki þarf að greiða kílómetragjald af akstri erlendis.

Gjaldskyldur eigandi eða umráðamaður ökutækis þarf að:

  • skrá stöðu akstursmælis við brottför frá landinu

  • skrá stöðu akstursmælis við komu til landsins

  • sækja um niðurfellingu kílómetragjalds vegna aksturs erlendis eftir að komið er aftur til landsins og framvísa staðfestingu á tímabundnum útflutningi

Nánar um reglur vegna kílómetragjalds á ökutæki.

Þjónustuaðili

Skatt­urinn