Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Innflutningsleyfi á skotvopnum og skotfærum til endursölu

Innflutningsleyfi á skotvopnum og skotfærum til endursölu

Almennt

Sækja þarf um innflutningsleyfi fyrir skotvopn og skotfæri til endursölu.

Undir það leyfi falla:

  • skotvopn og skotfæri,

  • íhlutir skotvopna og skotfæra, þar á meðal tækjum til endurhleðslu

Svona er ferlið

  1. Sækja um leyfi til að flytja inn skotvopn og skotfæri til endursölu

  2. Vörur eru pantaðar og fluttar inn.

  3. Senda vörureikning til áritunar lögreglu.
    Best er að fá pro-forma invoice frá seljanda.

  4. Vörur eru afgreiddar úr tolli með árituðum vörureikning

Skilyrði

Leyfi er aðeins veitt:

  • umsækjanda með verslunar- og skotvopnaleyfi, sem hefur sérþekkingu á viðkomandi vörum

  • skráðum fyrirtækjum eða félögum sem tilnefna ábyrgðarmann sem fullnægir sömu skilyrðum.

Upplýsingar sem þurfa að fylgja

Með umsókn þarf að skila:

  • upplýsingum um útflytjanda, eins og nafn og staðsetningu

  • skýringu á innflutningi

  • magnlýsingu á skotvopnum og aukahlutum

  • aðrar upplýsingar sem umsækjandi vill koma á framfæri

Kostnaður

6.500 krónur

Gildistími

Gildir í 6 mánuði.

Stundum getur seljandinn ekki sent vöruna á tilskildum tíma, til dæmis ef hún er sérsmíðuð.

Þá þarf að endurnýja innflutningsleyfið þegar seljandi getur sent vöruna.

Þegar leyfi er samþykkt

Þegar leyfi er staðfest er hægt að flytja inn vörur og senda reikninga til áritun lögreglu.

Innflutningsleyfi á skotvopnum og skotfærum til endursölu

Þjónustuaðili

Lögreglan