Fara beint í efnið
Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Umhverfis- og auðlindafræði

Kjörsvið: Sjálfbær landbúnaður og byggðaþróun

Umsókn um háskólanám

MS - 120 einingar

ISCED flokkur: 0588

Meistaranám í umhverfis- og auðlindafræði er sniðið að þeim sem brenna fyrir umhverfismálum og sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda á tímum hnattrænna breytinga.

Meginmarkmið námsins er að útskrifa nýja kynslóð fagfólks sem hefur haldgóða þekkingu og færni á sviði umhverfis- og auðlindafræða og getur unnið þvert á fræði og faggreinar.

Kennt er alfarið á ensku og nemendahópurinn er alþjóðlegur. Sjö kjörsvið eru í boði.

Er námið fyrir þig?

  • Brennur þú fyrir umhverfis- og auðlindamálum?

  • Hefur þú áhuga á sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda?

  • Langar þig að öðlast færni til að vinna í þverfræðilegum og alþjóðlegum teymum?

  • Vilt þú auka þekkingu þína á fræðilegum vinnubrögðum?

Um hvað snýst námið?

Meistaranám í umhverfis- og auðlindafræði er þverfræðilegt tveggja ára rannsóknartengt nám sem veitir menntun á sviðum sem tengjast umhverfismálum og sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda

Námskeiðaval þvert á deildir háskólans og umfang rannsóknarverkefnis gerir nemendum kleift að móta námið að sínu áhugasviði. Að náminu standa öll fimm fræðasvið Háskóla Íslands, Félagsvísindasvið, Heilbrigðisvísindasvið, Hugvísindasvið, Menntavísindasvið og Verkfræði- og náttúruvísindasvið.

Hornsteinn námsins er meistaraverkefni byggt á rannsóknum, sem mögulegt er að vinna í samstarfi við innlenda og erlenda aðila innan annarra háskóla, stofnana og fyrirtækja.

Uppbygging náms

Námið er 120 einingar og er skipulagt sem fullt nám til tveggja ára.

Námið skiptist í:

  • Skyldunámskeið, 23-35 einingar

  • Valnámskeið, 60-90 einingar

  • Lokaverkefni, 30 eða 60 einingar

Kjörsvið

Nemendur velja á milli eftirfarandi kjörsviða:

  • Umhverfis- og auðlindafræði - Opið kjörsvið fyrir nemendur sem vilja búa yfir víðtækri þekkingu á umhverfis- auðlindafræði eða vilja leggja áherslu á aðra þætti en í skilgreindum kjörsviðum, til dæmis á sviði umhverfis og heilsu, menntunar og sjálfbærni eða tengslum sálfræði og umhverfismála.

  • Umhverfisvísindi og stjórnun umhverfismála - Umhverfismál í víðu samhengi allt frá stjórnun umhverfismála í fyrirtækjum til alþjóðasamfélagsins þar sem eðli og orsakir umhverfisvandamála sem og lausnir þeirra eru greind. Sértæk viðfangsefni eru til dæmis loftslagsbreytingar, mengun í lofti á landi og í sjó/vatni, efnanotkun, úrgangur, hringrásarhagkerfið, heimsmarkmiðin, umhverfisstjórnunarkerfi.

  • Stjórnun náttúruauðlinda - Stjórnun og verndun náttúruauðlinda í fjölbreyttu samhengi þar sem umfjöllun er bæði fræðileg og hagnýt í samhengi eðlis og orsaka hnignunar auðlinda sem og lausna. Sértæk viðfangsefni eru til dæmis skógrækt, jarðvegsauðlindir, landnotkun, villt dýr, líffræðilegur fjölbreytileiki, víðerni og vernduð svæði, vatn, vistkerfisþjónusta og fjölbreytt kerfi stjórnunar.

  • Hafið og sjálfbærni - Verndun og sjálfbær nýting hafsins og auðlinda þess.

  • Endurnýjanleg orka - orka og sjálfbærni: stefnumótun, orkuhagfræði og umhverfi - Sjálfbær þróun orkukerfa þar sem umfjöllunin er bæði fræðileg og praktísk um breytingar á orkukerfum í átt að sjálfbærni. Sértæk viðfangsefni eru til dæmis framleiðsla orku og notkun hennar, stefnumótun og stefnugreining, efna og orkuauðlindir, endurnýjanleg orka, hiti, rafmagn, rafeldsneyti, lífeldsneyti, samgöngur, iðnaður allt í samhengi hinna fjölmörgu vídda sjálfbærni. Hér má sjá fleiri námsleiðir sem hafa endurnýjanlega orku sem kjörsvið.

  • Sjálfbærnigreind - Umfjöllun um sjálfbærni í víðu samhengi með áherslu á þverfræðilegar greiningar á sjálfbærni og velferð á mismunandi skölum. Sérstök áhersla á greiningar á vistspori "the ecological footprint" og notkun þess við ákvarðanatöku og miðlun.

  • **Sjálfbær landbúnaður og byggðaþróun -**Öflugur sjálfbær landbúnaður í sátt við umhverfi og samfélag er ein af grunnstoðum þróunar samfélaga um allan heim, ekki síst með tilliti til fæðuöryggis og byggðaþróunar. Kjörsviðið samtvinnar grundvallaratriði landbúnaðarvísinda við umhverfisvísindi, nýsköpun, hagvísindi, stefnumótun og þróun byggða. Komið er inná fjölmörg þemu í kjörsviðinu svo sem landbúnaðarkerfi og framleiðslu, fæðukerfi og fæðuöryggi, stefnu og stuðning stjórnvalda þar með talið stjórnkerfi og stjórntæki hins opinbera, hagsæld og hringrásarhagkerfi, loftslagsbreytingar, byggðaþróun, nýsköpun í dreifbýli og landnýtingu – allt í samhengi við sjálfbærni.

  • Sjálfbærni í rekstri - Sjálfbærniáherslur í rekstri skipulagsheilda, þ.e. fyrirtækja og stofnana, er grundvallarforsenda lífvænleika þeirra til lengri tíma. Slíkar áherslur taka á umhverfislegum og félagslegum þáttum, sem og stjórnarháttum (UFS) á siðferðilegum grunni sem eflir traust hagsmunaaðila. Sjálfbærniáherslur gera leiðtogum kleift að skapa verðmæti sem gagnast samfélaginu og plánetunni með því að efla nýsköpun og styrkja seiglu og samkeppnishæfni skipulagsheilda, sem gerir þeim kleift að dafna í síbreytilegu og flóknu alþjóðlegu samhengi. Kjörsviðið sjálfbærni í rekstri fjallar m.a. um stefnumörkun og innleiðingu á stefnu, stjórnskipulag, aðgerðir, fjármögnun, skýrslugerð og útkomu af þessháttar áherslum.

Starfsþjálfun

Reglulega er meistaranemum boðið upp á starfsþjálfun í hinum ýmsu atvinnugreinum. Starfsþjálfunin er hagnýtt 6 eininga valnámskeið sem veitir nemendum tækifæri til að fá innsýn í starfsemi ýmissa skipulagsheilda sem tengjast umhverfis- og auðlindafræði.

Fyrirkomulag kennslu

Kennsla fer fram á ensku og nemendur brautskrást með MA eða MS í umhverfis- og auðlindafræði frá mismunandi deildum, allt eftir áherslum þeirra í meistaraverkefninu.

Nemendur velja leiðbeinanda í meistaraverkefni úr hópi fastra akademískra starfsmanna. Heimadeild aðalleiðbeinanda segir til um frá hvaða deild nemandi brautskráist frá að námi loknu.

Nemendur fá tækifæri til að kynnast atvinnulífinu í vettvangsferðum og verkefnavinnu sem og með starfsþjálfun sem metin er til eininga.

Meginmarkmið

Miðað er að því að útskrifa nýja kynslóð fagfólks sem hefur haldgóða þekkingu og færni á sviði umhverfis- og auðlindafræða og getur unnið þvert á fræði og faggreinar.

Annað

Námið veitir aðgang að doktorsnámi

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Meistaranám, MS

Hefst: Haustönn 2026

Námstími: 2 ár

Umsóknartímabil: 28. febrúar 2026 - 15. apríl 2026

Námsform: Staðnám

haskolanam logo

Meðferð persónuupplýsinga

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið