Fara beint í efnið
Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Búvísindi

Kjörsvið: Sjálfbær landbúnaður og byggðaþróun - áfangamiðað

Umsókn um háskólanám

MS - 120 einingar

ISCED flokkur: 0811

Meistaranám í Búvísindum er rannsóknarmiðað meistaranám (öll kjörsvið nema SLB). Markmið þess er að veita einstaklingsbundna menntun og þjálfun í búvísindum.Námið felur yfirleitt í sér 60 ECTS sjálfstætt rannsóknarverkefni og 60 ECTS í námskeiðum. Aðeins 18 einingar eru skyldunámskeið; námskeið í vísindaskrifum, námskeið um rannsóknarsiðfræði og (virk þátttaka í) málstofum framhaldsnema. Önnur námskeið eru ætluð til að styðja nemandann í rannsóknarverkefninu. Þau er hægt að taka við LbhÍ eða aðra háskóla innanlands eða erlendis.Þegar nemandi sækir um í rannsóknarmiðuðu meistaranámi fær hann skipaðan tengilið úr röðum akademísks starfsfólks LbhÍ, hafi hann ekki þegar fundið slíkan. Þessi einstaklingur hjálpar nemandanum að þróa hugmynd um rannsóknarverkefni, að finna að minnsta kosti tvo hæfa leiðbeinendur til að mynda meistaranámsnefnd og aðstoðar við gerð námsáætlunar. Val á námskeiðum skal styðja við rannsóknina á rökréttan hátt og uppfylla almenn hæfniviðmið LbhÍ um meistaranám.

Kjörsvið: Sjálfbær landbúnaður og byggðaþróun

Öflugur sjálfbær landbúnaður í sátt við umhverfi og samfélag er ein af grunnstoðum þróunar samfélaga um allan heim, ekki síst með tilliti til fæðuöryggis og byggðaþróunar. Meistaranám í Búvísindum með kjörsviðið Sjálfbær landbúnaður og byggðaþróun býður upp á nám sem fyrir einstaklinga sem vilja auka við þekkingu sína á breiðum grundvell landbúnaðarvísinda, umhverfisvísinda, nýsköpunar, hagvísinda, stefnumótunar og þróun byggða. Komið er inná fjölmörg þemu í kjörsviðinu svo sem landbúnaðarkerfi og framleiðslu, fæðukerfi og fæðuöryggi, stefnu og stuðning stjórnvalda þar með talið stjórnkerfi og stjórntæki hins opinbera, hagsæld og hringrásarhagkerfi, loftslagsbreytingar, byggðaþróun, nýsköpun í dreifbýli og landnýtingu – allt í samhengi við sjálfbærni. Námið er kennt í þverfaglegu samstarfi við Háskóla Íslands, og fer kennsla skyldunámskeiða fram í staðnámi bæði á Hvanneyri og í Reykjavík. Vegna samstarfsins hafa nemendur möguleika á því að velja námskeið úr báðum háskólum, sem og þvert á deildir háskólanna umfram þær 40 ECTS einingar sem fela í sér skyldunámskeið. Umfang rannsóknarverkefnis gerir nemendum svo kleift að móta námið að sínu áhugasviði.

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Meistaranám, MS

Hefst: Haustönn 2026

Námstími: 2 ár

Umsóknartímabil: 1. febrúar 2026 - 16. apríl 2026

Námsform: Staðnám

haskolanam logo

Meðferð persónuupplýsinga

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið