Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók
Þjónustuaðili:
©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Öll réttindi áskilin
1. útgáfa 2026
Niðurstöður stærðfræðiprófs
Niðurstöður stærðfræðiprófsins samanstanda af einstaklings- og hópaniðurstöðum og eru settar fram í texta, töflum og á myndrænu formi, bæði fyrir prófið í heild og hvern inntaksflokk.
Staða hóps á stærðfræðiprófi er sett fram sem hlutfall nemenda á hverju mælitölubili með samanburði við landið. Efri súlan sýnir hlutfallið á landsvísu.
Á landsvísu fær:
21% nemenda mælitölurnar 1-7 en þetta eru nemendur sem þurfa stuðning og eftirfylgni vegna slakrar stöðu í stærðfræði.
58% nemenda mælitölurnar 8-12 og eru á meðaltali eða við meðaltal.
21% nemenda mælitölurnar 13-19 sem er betri frammistaða en hjá jafnöldrum á landsvísu.
Mikilvægt er að túlka meðaltöl fyrir litla hópa, svo sem með færri en 10 nemendur, með fyrirvara þar sem frammistaða einstakra nemenda getur haft mikil áhrif á meðaltal bekkjarins.
Neðri súlan sýnir stöðu bekkjarhóps og hlutfall nemenda innan mælitölubila. Í þessum tiltekna hópi er hlutfall nemenda sem fá mælitölurnar 1-7 á stærðfræðiprófitalsverthærra en á landsvísu eða 42%. Hlutfall nemenda sem sýnir betri frammistöðu en jafnaldrar er 16%. Það er ögn lægra en á landsvísu. Svo lítinn mun er þó rétt að túlka með það í huga að í þessum hóp eru aðeins 12 nemendur. Ef aðeins einn nemandi til viðbótar hefði sýnt betri frammistöðu en jafnaldrar þá hefði þetta hlutfall verið ögn hærra en á landsvísu.




