Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Fyrirframgreiðslusvik

Fyrirframgreiðslusvik er þegar vara, þjónusta eða verk er auglýst á netinu sem þú þarft að borga fyrir fram en síðan færðu aldrei það sem þú borgaðir fyrir.

Varasamt getur verið að versla á netinu við einhvern sem þú hefur aldrei séð, sérstaklega þegar um háar upphæðir er um að ræða. Þegar þú verslar við einhvern á netinu, til dæmis gegnum samfélagsmiðla, er öruggast að greiða ekki fyrr en þú hefur séð vöruna eða skrifað undir. Einnig ef þú tekur að þér auglýsta vinnu eða verkefni gegnum netið ættirðu aldrei að þurfa að borga neitt fyrir það, til dæmis flugfar.

Algeng aðferð svikahrappa er að reka á eftir fólki og bera við tímapressu. Slíkt ætti alltaf að vekja grunsemdir.

1. Hafðu samband við bankann þinn eða fjármálaþjónustu

Hafðu samband sem fyrst til að láta vita. Því fyrr sem brugðist er við, því meiri líkur eru á að stöðva greiðsluna.

2. Tilkynna til lögreglu

Þú ættir alltaf að tilkynna fyrirframgreiðslusvik til lögreglu. Það er hægt að gera hér eða á næstu lögreglustöð.

Tilkynning um fyrirframgreiðslusvik

Í tilkynningunni er hægt að gefa lögreglunni leyfi til að rannsaka málið hjá bankanum. Það hjálpar við rannsókn málsins.

Dæmi um fyrirframgreiðslusvik:

  • Þú borgar með millifærslu fyrir vöru á Facebook en færð hana aldrei afhenda.

  • Varan á að vera send með flutningsfyrirtæki og þú færð sendan link til að millifæra pening.

  • Þú greiðir fyrir leiguíbúð án þess að sjá hana.

  • Beðið er um fyrirframgreiðslu fyrir afhendingu lottóvinnings.

Þjónustuaðili

Lögreglan