Framkvæmd launaafdráttar fyrir launagreiðendur
Launagreiðendum er skylt að innheimta skattskuldir og ógreidd opinber gjöld af launum starfsmanna sinna.
Þetta er kallað launaafdráttur.
Tilkynning um launaafdrátt
Ef þú þarft að draga af launum starfsfólks færð þú tilkynningu á Mínar síður Ísland.is
Svona skilar þú rafrænt
Mánaðarlega sendir Fjársýslan textaskrá með upplýsingum um skattskuldir. Skráin berst á það netfang sem þú gafst upp við umsókn um rafræn skil.
Launagreiðandi les skrána í bókhaldkerfi sitt.
Þegar innlestri er lokið skal senda niðurstöðuna sem viðhengi á tbrkrafa@runuvinnsla.is.
Launagreiðandi millifærir launaafdrátt innan 6 daga frá útborgun launa.
Ef skráin berst ekki gæti netfang þitt verið rangt skráð. Uppfærðu netfang með því að senda réttar upplýsingar á tbrkrafa@runuvinnsla.is.
Bankaupplýsingar
Innan 6 daga frá útborgun launa millifærir launagreiðandi upphæð launaafdráttar á:
Kennitala: 540360-0570
Reikningsnúmer: 0101-26-7649
Kvittun skal senda á 7649@skatturinn.is
Þetta er gert mánaðarlega þar til skattskuldir launþega eru greiddar að fullu.
Ekki er send kvittun fyrir greiðslu á skattskuldum og opinberum gjöldum.
Launþegi getur fylgst með á Mínum síðum Ísland.is undir Fjármál.
Þjónustuaðili
Skatturinn