Flutningur á láni
Ef þú ert að kaupa nýja eign geturðu sótt um veðlánaflutning og flutt húsnæðislánið með þér á nýju eignina. Þannig heldurðu sömu kjörum og þarft ekki að greiða lántökukostnað.
Ef þú ert enn í leit að nýrri eign eða eignin er enn í byggingu, geturðu sótt um tímabundna afléttingu lánsins gegn bankaábyrgð.
Sækja um veðlánaflutning
Fylgigögn
Undirrituð kauptilboð beggja eigna (sem þú ert að selja og kaupa).
Söluyfirlit eignar sem þú ert að kaupa.
Upplýsingar um önnur húsnæðislán sem þú ert með.
Ef þú ert að bæta við þig lánum eða gera breytingu á greiðendum þarftu að skila inn greiðslumati (má vera frá þeirri lánastofnun sem veitir nýja lánið).
Ráðgjafi HMS mun hafa samband fljótlega með tölvupósti, staðfesta umsókn og óska eftir frekari upplýsingum ef þörf er á.
Sækja um afléttingu láns gegn bankaábyrgð
Fylgigögn
Staðfesting á ábyrgð frá bankanum.
Undirritað kauptilboð þeirra eignar sem verið er að selja.
Ráðgjafi HMS mun hafa samband fljótlega með tölvupósti, staðfesta umsókn og óska eftir frekari upplýsingum ef þörf er á.
Flutningur á láni samþykktur
Þú færð tölvupóst þegar umsókn um flutning á láni hefur verið samþykkt.
Þegar skjöl eru tilbúin getur þú nálgast þau á afgreiðslutíma til HMS í Borgartúni 21. Einnig er hægt að óska eftir að fá skjölin send í pósti ef þú býrð á landsbyggðinni.
Þegar skjölunum hefur verið þinglýst skilar þú þeim inn til HMS.
Kostnaður við veðlánaflutning leggst ofan á næsta gjalddaga lánsins.
Kostnaður
Veðlánaflutningur: 15.000 krónur.
Þinglýsingarkostnaður hjá sýslumanni
Flutningi á láni synjað
Verði umsókn um veðlánaflutning synjað verður ákvörðunin birt í stafrænu pósthólfi þínu á island.is. Ef ný gögn eða upplýsingar liggja fyrir getur þú óskað eftir endurupptöku málsins.
Teljir þú ákvörðunina ranga getur þú kært hana til úrskurðarnefndar velferðarmála.
Þjónustuaðili
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun