Endurkröfur vegna ofgreiddra húsnæðisbóta
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra sér um innheimtuofgreiddra húsnæðisbóta.
Hægt er að greiða kröfu á bankareikning 0159-26-267, kennitala 660914-0990. Tilgreina þarf kennitölu og nafn skuldara við greiðslu í banka.
Greiðsludreifing
Ef þú getur ekki greitt kröfu í einu lagi getur þú sótt um greiðsludreifingu með því að senda skriflega beiðni á innheimta@syslumenn.is eða með bréfi til Sýslumannsins á Norðurlandi vestra.
Skilyrði greiðsludreifingar
Lágmarksfjárhæð mánaðarlegra greiðslna: 10.000 krónur
Hámarkstími: 36 mánuðir
Innheimtuferli
Þegar krafa er stofnuð birtist hún í heimabanka skuldara.
Ef krafan er ógreidd og ekki hefur verið samið um hana innan 30 daga, getur eftirfarandi úrræðum verið beitt:
Skráningu á vanskilaskrá (eftir birtingu greiðsluáskorunar eða árangurslaust fjárnám)
Álag
Heimilt er að bæta 15% álagi á fjárhæð ofgreiddrar kröfu hafi bótaþegi gefið upp rangar, villandi eða ófullnægjandi upplýsingar.
Kæruleiðir
Hægt er að óska eftir rökstuðningi, endurupptöku eða kæra niðurstöðu til Úrskurðarnefndar velferðarmála innan 3 mánaða frá dagsetningu bréfs Vinnumálastofnunar.
Nánari upplýsingar um kæruleiðir eru á vef Úrskurðarnefndar velferðarmála.
Stjórnsýslukæra frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunar, en frestar aðför.
Ef ákvörðun er kærð skal senda staðfestingu til Sýslumanns á Norðurlandi vestra á netfangið innheimta@syslumenn.is.
Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra