Endurgreiðsla VSK vegna íbúðarhúsnæðis
Eigendur íbúðarhúsnæðis geta sótt um 35% endurgreiðslu af greiddum virðisaukaskatti af vinnu á verkstað, vegna:
nýbygginga
endurbóta
viðhalds
Almennt fellur undir ákvæðið öll sú vinna sem fram fer á staðnum, þó ekki sú vinna sem alla jafna er unnin á verkstæði eða vinna stjórnenda farandvinnuvéla og vinnuvéla sem eru skráningarskyldar í vinnuvélaskrá.
Hægt er að sækja um endurgreiðslur í sex ár talið frá því að endurgreiðsluréttur stofnaðist.
Umsókn vegna eldri tímabila
Áfram er hægt að sækja um 60% endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna framkvæmda sem féllu til á tímabilinu 1. september 2022 til 30. júní 2023, næstu sex ár frá því endurgreiðsluréttur stofnaðist.
Eins er áfram hægt að sækja um 100% endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna framkvæmda sem féllu til á tímabilinu 1. mars 2020 til 31. ágúst 2022 í allt að sex ár frá því að endurgreiðsluréttur stofnaðist.
Gögn með umsókn
Fullgildir reikningar frá seljanda þjónustunnar.
Staðfesting á greiðslu reiknings (s.s. útprentun úr heimabanka vegna millifærslu).
Seljandi þjónustunnar verður að vera skráður á virðisaukaskattsskrá (vera með opið VSK-númer) á þeim tíma sem vinnan er innt af hendi. Gott er að kanna áður en reikningur er greiddur að þetta skilyrði sé uppfyllt.
Athuga hvort seljandi sé með opið VSK-númer
Hleðslustöðvar fyrir bifreiðar
Sækja má um endurgreiðslu virðisaukaskattur vegna vinnu við uppsetningu hleðslustöðva í eða við íbúðarhúsnæði. Um þá endurgreiðslu gilda sömu skilyrði og gilda um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu við byggingu, endurbætur eða viðhald íbúðarhúsnæðis.
Enn hægt að sækja um endurgreiðslu vegna eldri tímabila
Áfram verður hægt að sækja um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna kaupa og uppsetningar á hleðslustöðvum á tímabiliinu 1. janúar 2020 til og með 31. desember 2023. Endurgreiðsla vegna þess tímabils verður áfram 100%.
Þjónustuaðili
Skatturinn