Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Börn í bíl

Helstu reglur og öryggisatriði

Öll börn undir 135 cm skulu nota barnabílstól þegar þau ferðast í bíl. Ekkert er því þó til fyrirstöðu að börn noti bílstól lengur að því gefnu að stóllinn sé framleiddur fyrir hæð og þyngd barnsins.

Börn undir 150 cm mega ekki sitja í framsæti framan við virkan öryggispúða. Ef loftpúðinn hefur verið aftengdur eða gerður óvirkur með öðrum hætti er börnum óhætt að sitja í framsæti.

Bakvísandi barnabílstólar

Bakvísandi stólar eru börnum mun öruggari en framvísandi stólar. Í flestum umferðarslysum kemur högg framan á bifreið sem þýðir að í bakvísandi stólum leggst höfuð barnsins aftur í stólinn. Í framvísandi stólum kastast hinsvegar höfuð og líkami barnsins fram. Ekkert heldur við barnið nema beltin sem grípa líkamann ansi vel en höfuð og háls barnsins eru tiltölulega óvarin í framvísandi stól borið saman við bakvísandi. Mælt er með því að börn séu í bakvísandi stólum eins lengi og hægt er og að minnsta kosti til þriggja ára aldurs.

Að festa stól og barn rétt í bílinn

Mikilvægt er að lesa leiðbeiningar vel þegar stóll er festur í bíl, sérstaklega í fyrsta skipti. Ef stóll er ranglega festur í bíl eða barn ranglega fest í stólinn þá getur búnaðurinn verið gagnslaus.

  • Passa þarf að belti séu ekki snúin og að þau falli passlega þétt að barninu. Þrengja gæti þurft beltið eftir því hversu mikið barnið er klætt hverju sinni.

  • Athugið sérstaklega að þrengja beltið vel ef barnið er í dúnúlpu eða öðrum fatnaði sem notar loft sem einangrun. Við mikið högg gefur loftið inni í flíkinni eftir og er þá hætta á að barnið sé ekki nógu vel skorðað í stólinn.

  • Öruggasta leiðin til að festa stóla er með isofix-festingu beint í grind bílsins. Flestir nýir bílar eru með isofix-festingum og er mælt með því að nota stól með slíkum festingum.

  • Barnabílstólar í notkun á Íslandi þurfa að uppfylla Evrópustaðal, annaðhvort skv. reglugerð R44/04 eða reglugerð R129 (i-size). R129 er nýrri og öruggari staðall og er sá eini sem má selja á Íslandi. R44/04 er eldri staðallinn og einhverjir stólar sem þegar eru í umferð eru skv. þeim staðli og má nota þá stóla þar til endingartíma þeirra lýkur.

  • Endingartímar barnabílstóla eru ákvarðaðir af framleiðanda. Í flestum tilfellum endast ungbarnastólar í 5 ár og stólar fyrir eldri börn í 10 ár.

  • Notkunarleiðbeiningar stóla gefa upp fyrir hvaða hæð og þyngd stóllinn er ætlaður. Börn geta orðið of hávaxin fyrir stól, og ef að höfuð barns nær upp fyrir stólbak er það vaxið upp úr stólnum, þrátt fyrir að vera ekki orðið of þungt fyrir stólinn. Í þeim tilfellum er mælt með að skoða stóla sem eru framleiddir fyrir börn upp að 150 cm, óháð þyngd.

Notaðir barnabílastólar

Notaðir barnabílstólar geta verið varasamir þar sem erfitt getur verið að sannreyna að stóllinn hafi ekki orðið fyrir hnjaski og sprungur myndast undir klæðningu. Því er ekki mælt með að kaupa notaðan stól af ókunnugum.

Viðurlög
  • Sekt fyrir að nota ekki réttan öryggisbúnað fyrir barn í bíl er 30.000,- krónur.

  • Sama sekt fellur á bílstjóra ef barn yfir 135 cm en undir 15 ára aldri notar ekki öryggisbelti.

Fræðslumynd

Bæklingur

Einblöðungar

Könnun á öryggisbúnaði barna í bíl við leikskóla

Landsbjörg framkvæmir könnun fyrir Samgöngustofu annað hvert ár þar sem öryggisbúnaður barna sem koma á leikskóla í bíl er athugaður.

Niðurstöður nýjustu könnunarinnar má finna hér:

Könnun á öryggisbúnaði barna í bíl 2025

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa