Bifreiðahlunnindi – Skattur af bifreið frá launagreiðanda
Ef launagreiðandi lætur starfsmann hafa bifreið til umráða eða afnota telst það til tekna sem skattskyld hlunnindi hjá starfsmanni.
Sömu reglur gilda hvort sem bifreið er í eigu launagreiðanda/rekstraraðila eða hann hefur hana á leigu eða til láns.
Ákvörðun bifreiðahlunninda og útreikningur þeirra fer eftir matsreglum sem birtar eru árlega í skattmati.
Mismunandi reglur gilda eftir því hvort starfsmaður telst hafa full og ótakmörkuð umráð yfir bifreiðinni eða hvort hann telst hafa takmörkuð afnot yfir henni.
Full og ótakmörkuð umráð
Láti launagreiðandi starfsmann hafa bifreið til fullra og ótakmarkaðra umráða eru bifreiðahlunnindi reiknuð miðað við aldur og verð bifreiðar en ekki til raunverulegrar notkunnar starfsmanns á bifreiðinni.
Eigendur fyrirtækja, framkvæmdastjórar þeirra og aðrir í sambærilegum störfum sem og stjórnarmenn félaga teljast alltaf hafa full og ótakmörkuð umráð yfir þeim fólksbifreiðum sem þeir hafa til einkanota
Takmörkuð afnot
Hafi starfsmaður afnot af bifreið launagreiðanda sem er að öðru leyti notuð í daglegum rekstri launagreiðandi og sé starfsmanninum eingöngu heimilt að að nota hana utan vinnutíma til aksturs milli heimilis og vinnustaðar og til einstakra tilfallandi afnota telst hann hafa takmörkuð afnot af bifreiðinni.
Í þeim tilfellum þar sem um er að ræða takmörkuð afnot reiknast hlunnindi miðað við ekna kílómetra.
Ef starfsmaður greiðir launagreiðanda sínum fyrir afnot af bifreið sem hann hefur til umráða eða afnot af koma þær greiðslur til frádráttar tekjumatinu.
Sjá reiknivél bifreiðahlunninda á vef Skattsins.
Þjónustuaðili
Skatturinn