Beiðni um áritun vörureiknings vegna innflutnings á flugeldum
Á þessari síðu
Afgreiðsla úr tolli
Lögreglustjóri þarf að samþykkja vörureikning áður en sending af flugeldum er leyst úr tolli.
Senda vörureikning
Innflutningsaðili sendir lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu vörureikning. Í honum þarf meðal annars að koma fram:
tegundir flugelda,
magn einstakra tegunda, stærð og samsetningu.
Sérstaklega skal tilgreina þá flugelda sem eingöngu er leyft að nota til flugeldasýninga og skotelda sem eingöngu eru notaðir við leiksýningar, kvikmyndagerð og þess háttar.
Einnig skal taka fram ef um er að ræða tegundir skotelda sem ekki hafa verið fluttar inn áður.
Upplýsingar um sendingu
Þjónustuaðili
Lögreglan