Fara beint í efnið

Akstur í slæmu veðri, miklum vindi eða erfiðri færð

Áður en haldið er af stað

Ef hætta er á að veður, vindur eða færð skerði umferðaröryggi þarf að athuga vel aðstæður á akstursleið áður en haldið er af stað, sérstaklega ef ekið er bifreiðum sem taka á sig mikinn vind, eins og:

  • vörubifreiðar

  • rútur

  • bílar með eftirvagna 

Á eftirfarandi stöðum má finna upplýsingar um færð og veður, veðurviðvaranir og fleiri upplýsingar þess efnis:

  • Umferdin.is: Upplýsingar um færð á vegum, ástand vega og vind. Einnig koma þar fram veðurviðvaranir frá Veðurstofunni og þar má sömuleiðis sjá aðstæður í vefmyndavél þar sem þær eru. 

  • Safetravel.is: Aðvaranir um sérstaka hættu, bæði á vegum og annarsstaðar, einkum og sér í lagi vegna veðurs og færðar.

  • Vedur.is - Viðvaranir: Viðvaranir vegna veðurs. Þegar vænta má sérstaklega slæms veðurs er það birt hér.

  • Vedur.is - Vindur: Vindstyrkur. Hægt er að velja þann tíma sem ætlunin er að aka og lesa úr litnum á kortinu á þeim stað sem ekið er, hver væntanlegur vindstyrkur verður. Skalann má finna undir kortinu og er hann birtur í metrum á sekúndu.

Sérstök varúðarviðmið vegna vinds fyrir húsbíla, hjólhýsi, fellihýsi og aðra tengivagna má finna neðst á þessari síðu.

Ef veður eða færð versnar á leiðinni
  • Dragðu úr hraða og auktu bilið í næsta ökutæki.

  • Forðastu snöggar stýrishreyfingar, hemlun og hröðun.

  • Haltu fast um stýrið, sérstaklega þar sem vindur getur skyndilega tekið í ökutækið.

  • Gættu sérstakrar varúðar þegar ekið er út úr skjóli, fram hjá byggingum eða öðrum stórum ökutækjum og yfir brýr.

  • Ekki stöðva á akbraut nema í neyð.

  • Leitaðu að öruggum stað til að stöðva ef þú treystir þér ekki til að halda áfram.

  • Fylgstu með breytingum á Umferdin.is og viðvörunum Safetravel.is og Veðurstofu Íslands.

  • Hringdu í 112 ef neyð skapast.

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa