Handbók vefstjóra: Setja inn efni
Uppsetning á fréttavirkni fyrir stofnanasíður
Á stofnanasíðunni þarf að velja hvaða tagg tilsvarar fréttum stofnunarinnar í News Tag reitinum.
Ef samnýta á fréttir með annarri stofnun má fara í Add existing content og velja það tagg.
Annars þarf að fara í Create new content og búa til nýtt tagg.
Best er að taggið heiti það sama og stofnunin nema ástæða sé til annars.
Þegar búið er að vista stofnanasíðuna er hægt að fara inn á [island.is/s/stofnun/frett]Dæmi:(<http://island.is/s/samgongustofa/frett>)
og sjá allar fréttir sem tilheyra stofnuninni (þ.e. þær sem eru með tagg stofnunarinnar).
Sjá einnig Bæta frétta filter taggi á fréttir.

Handbók vefstjóra
Ertu með ábendingu eða spurningu?