Tryggingastofnun: Ellilífeyrir
Hvernig er aldursviðbót reiknuð út?
Aldursviðbót ellilífeyris er að hámarki 32.917 krónur hjá einstaklingum sem fengu sitt fyrsta örorkumat á aldrinum 18 – 24 ára. Fjárhæðin lækkar um 5% frá og með 25 ára aldri þar til hún fellur niður við 44 ára aldur. Hún er ekki greidd þeim sem fá fyrsta örorkumat eftir 43 ára aldur.
Aldursviðbót er tekjutengd. Samanlögð fjárhæð ellilífeyris og aldursviðbótar lækkar um 45% af tekjum umfram frítekjumörk, þar til greiðslur falla niður.
Tökum sem dæmi einstakling sem fékk sitt fyrsta örorkumat við 30 ára aldur. Hann hóf töku ellilífeyris við 67 ára aldur. Hann á ekki rétt á heimilisuppbót og á rétt á 300.000 kr. mánaðarlega úr lífeyrissjóði. Engar aðrar tekjur.
Grunnfjárhæðir
Grunnfjárhæð ellilífeyris: 365.592 krónur.
Grunnfjárhæð aldursviðbótar: 23.042 krónur (32.917 krónur*70%).
Samtals grunnfjárhæð: 388.634 krónur .
Áhrif tekna
Almenn frítekjumörk á mánuði: 43.658 krónur.
Áhrif tekna: 45%
Tekjur sem áhrif hafa á útreikning: 115.354 krónur ((300.000-43.658 krónur)*45%)
Útreikningur
Samtals grunnfjárhæð 388.634 krónur.
- Tekjur sem hafa áhrif á útreikning 115.354 krónur
Greiðsluréttur 273.280 krónur.