Tryggingastofnun: Ellilífeyrir
Held ég aldursviðbót eftir að ég færist frá örorkulífeyri yfir á ellilífeyri?
Já ef þú fékkst þitt fyrsta örorkumat áður en þú náðir 44 ára aldri. Þessi breyting gildir frá 1. janúar 2026 en kom til framkvæmda 1. mars 2026. Samkvæmt fyrri lögum féll aldursviðbótin niður þegar öryrki varð 67 ára gamall. Með nýju lögunum er þessu breytt þannig að aldursviðbótin gildir áfram eftir að ellilífeyrisaldri er náð.