Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Ég átti rétt á örorkulífeyri áður en ég hóf töku ellilífeyris, hvers vegna fæ ég ekki greidda aldursviðbót?

Aldursviðbót greiðist þeim sem áttu rétt á aldursviðbót örorkulífeyris við ellilífeyrisaldur og voru á aldrinum 18-43 ára við fyrsta örorkumat eða þegar skilyrði endurhæfingarlífeyris voru fyrst uppfyllt. Ef þau skilyrði voru uppfyllt eftir þau aldursmörk er ekki réttur á aldursviðbót.

Athygli er vakin á því að þann 1. september 2025 tók við nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi.

Í eldra kerfi fengu þeir einstaklingar með örorkulífeyri aldursviðbót sem höfðu fengið sitt fyrsta örorkumat eða uppfylltu fyrst skilyrði til greiðslu endurhæfingarlífeyris á aldrinum 18-66 ára.

Í nýju kerfi fá þeir örorkulífeyrisþegar aldursviðbót sem fá sitt fyrsta samþætta sérfræðimat á aldrinum 18-43 ára. Það gildir einnig um þá sem áttu rétt á aldursviðbót í eldra kerfi.