Fara beint í efnið

Umsókn um AEO-vottun fyrir fyrirtæki í inn- eða útflutningi

Umsókn um vottun sem viðurkenndur rekstraraðili (AEO)

Íslensk fyrirtæki sem gegna hlutverki í alþjóðlegu vörukeðjunni og fullnægja settum skilyrðum og öryggisviðmiðum geta sótt um að hljóta AEO-vottun frá Skattinum.

AEO stendur fyrir „Authorised Economic Operator" og hefur verið nefnt „viðurkenndir rekstraraðilar“ á íslensku og er ætlað að auka öryggi alþjóðlegu vörukeðjunnar og greiða fyrir lögmætum viðskiptum og vörusendingum á milli landa.

Umsókn

Til að hefja umsóknarferlið þarf að senda inn eftirfarandi:

  • Útfyllt umsóknareyðublað
    Þar koma fram helstu upplýsingar um fyrirtækið, rekstrarform, hlutverk í aðfangakeðjunni og lýsing á starfseminni

  • Sjálfsmat fyrirtækja við umsókn
    Með umsókn þarf að fylgja útfylltur sjálfsmatslisti. Sjálfsmatið leiðir í ljós hvort umsækjandi standist þær lágmarkskröfur sem gerðar eru til viðurkenndra rekstraraðila.

Umsókn um vottun sem viðurkenndur rekstraraðili (AEO)

Þjónustuaðili

Skatt­urinn