Fara beint í efnið

Fjárhagsaðstoð vegna líffæragjafar

Umsókn um fjárhagsaðstoð vegna líffæragjafar

Þú getur sótt um tímabundna fjárhagsaðstoð hjá Tryggingastofnun vegna fjarveru frá vinnu eða námi vegna líffæragjafar.

Skilyrði

Til að sækja um fjárhagsaðstoð vegna líffæragjafar þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • eiga lögheimili á Íslandi,

  • vera óvinnufær vegna líffæragjafar,

  • gera hlé á námi vegna líffæragjafar.

Skilyrði líffæragjafa eftir aðstæðum

Þar að auki þarft þú að uppfylla mismunandi skilyrði miðað við þínar aðstæður:

Umsóknarferli

Svona sækir þú um

  1. Smelltu á Sækja um

  2. Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum

  3. Veldu Umsóknina Fjárhagsaðstoð vegna líffæragjafar

  4. Hakaðu við flokkinn Önnur réttindi

  5. Fylltu út umsóknina og hengdu við fylgigögn ef þú ert með þau tiltæk.

  6. Smelltu á Senda umsókn

Athugaðu að skrá frá hvaða tíma sótt er um.

Vinnslutími umsókna

Þú getur fylgst með stöðu umsókna á Mínum síðum undir Staða umsókna. Ef það vantar gögn færðu tölvupóst og tilkynningu á Mínum síðum undir Mín skjöl.

Vinnslutími annarra umsókna

Niðurstaða

Þegar niðurstaða liggur fyrir færðu tölvupóst og tilkynningu á Mínum síðum TR undir Mín skjöl.

Þar getur þú einnig séð upphæðir út árið í greiðsluáætlun.

Ef þú ert ósammála ákvörðuninni getur þú:

Fyrirkomulag greiðslna

Þú getur fengið greitt í allt að 3 mánuði og eru greiðslurnar greiddar eftir á í lok mánaðar.

Greiðslur falla niður eða réttur ekki til staðar

Réttur til greiðslna fellur niður eða er ekki til staðar ef þú ert:

  • á atvinnuleysisbótum á sama tímabili,

  • færð fæðingarorlofsgreiðslur eða fæðingarstyrk,

  • færð lífeyrisgreiðslur frá TR,

  • færð foreldragreiðslur frá TR.

Umsókn um fjárhagsaðstoð vegna líffæragjafar

Þjónustuaðili

Trygg­inga­stofnun