Fara beint í efnið

Stofnun samlagsfélags, slf.

Samlagsfélög eru skráð hjá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra. Skila þarf inn stofngögnum til fyrirtækjaskrár og greiða skráningargjald.

Afgreiðslutími umsóknar um skráningu samlagsfélags er almennt um tíu til tólf virkir dagar frá því að gögn eru lögð inn til fyrirtækjaskrár.

Sé stjórn kosin, framkvæmdastjóri ráðinn og endurskoðendur eða skoðunarmenn kosnir skal fylgja með staðfest endurrit af fundargerð um kjör þeirra ásamt yfirlýsingu þeirra um að þeir taki starfið að sér.

Skylt er að skrá raunverulega eigendur samlagsfélaga og skal tilkynning um þá fylgja stofngögnum félagsins.

Taka skal fram í félagssamningi hvort félagið sé sjálfstæður eða ósjálfstæður skattaðili.

Tilkynning um stofnun samlagsfélags

Þjónustuaðili

Skatt­urinn