Fara beint í efnið

Skattfrádráttur einstaklinga vegna hlutafjáraukningar

Einstaklingar geta fengið skattafslátt við að taka þátt í hlutafjáraukningu tiltekinna hlutafélaga. Til þess þurfa félagið og hlutafjáraukningin að uppfylla viss skilyrði og hafa fengið samþykki ríkisskattstjóra.

Afslátturinn felst í því að draga má hluta af fjárhæðinni sem varið er í fjárfestinguna frá skattstofni tekjuskatts- og/eða fjármagnstekjuskatts.

Frádráttarheimildin gildir um fjárfestingar á árunum 2016-2028, að undanskildu árinu 2025.

Frádráttur getur numið allt að 75% af fjárfestingu í hlutafjáraukningu. Heimildin nam 50% af fjárfestingu árin 2016-2019.

Hámarks frádráttarheimild hvers einstaklings er 11.250.000 kr. (sem samsvarar fjárfestingu að fjárhæð 15.000.000 kr.). Á árunum 2016-2019 var hámarks frádráttarheimild 5.000.000 kr. (vegna fjárfestinga að fjárhæð 10.000.000 kr.).

Skilyrði sem hlutafélag þarf að uppfylla

Viðkomandi félag þarf að fá staðfestingu ríkisskattstjóra á að öll skilyrði séu uppfyllt áður en farið er í tiltekna hlutafjáraukningu. Sótt er um staðfestingu á eyðublaðinu RSK 2.30.

Senda þarf inn umsókn fyrir hverja hlutafjáraukningu sem félag hyggst fara í. Heimild einstaklinga til að nýta skattfrádrátt er bundin við þá hlutafjáraukningu sem hefur verið samþykkt. Sé hlutafjáraukning sem farið er í ekki í samræmi við fjárhæð hlutafjáraukningar í umsókn þarf að sækja um að nýju vegna frekari hlutafjáraukningar.

Skilyrðin eru:

  • Félagið sé stofnsett á Íslandi eða innan annars ríkis innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES), aðildarríkis stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu, eða í Færeyjum, og með fasta starfsstöð á Íslandi.

  • Hjá félaginu starfi ekki fleiri en 25 starfsmenn og árleg velta þess sé undir 650 milljónum króna og/eða efnahagsreikningur sé undir 650 milljónum króna. Ef félag er hluti af félagasamstæðu skal miða við samstæðuna í heild á grundvelli samstæðureiknings.

  • Greiðslu alls hlutafjár vegna stofnunar viðkomandi félags þarf að vera lokið.

  • Félagið hafi ekki verið skráð á skipulegan markað.

  • Félagið hafi ekki, þegar hlutafjáraukning á sér stað, verið starfandi á markaði lengur en sjö ár frá fyrstu sölu þess í viðskiptalegum tilgangi.

  • Félagið sé rekið í hagnaðarskyni.

  • Félagið eigi ekki í fjárhagsvanda. Félag telst eiga í fjárhagsvanda ef að minnsta kosti eitt af skilyrðum sem fram koma í reglugerð nr. 785/2016, um skattafslátt manna vegna hlutabréfakaupa, er uppfyllt.

  • Íslenska ríkið eigi ekki útistandandi endurgreiðslukröfu á félagið vegna ólögmætrar ríkisaðstoðar.

  • Félagið hafi sent ríkisskattstjóra ársreikning sinn, sem gerður hefur verið í samræmi við lög um ársreikninga, fyrir næstliðið reikningsár.

  • Félagið sýni fram á að andvirði hlutafjáraukningarinnar sem um ræðir verði ráðstafað í þágu viðskiptastarfsemi þess. Ef félagið hefur ekki hafið viðskiptastarfsemi ber að nota að lágmarki 30% af andvirðinu til rannsókna eða þróunar á viðskiptastarfsemi sem hefjast skal innan tveggja ára frá skráningardegi hlutafjáraukningarinnar.

  • Hlutafjáraukning í félagi getur að hámarki numið 2.000 milljónum kr. Ef félag er hluti af félagasamstæðu nær hámarkið til samstæðunnar.

Áður en hlutafjáraukning fer fram skal félag fá staðfestingu ríkisskattstjóra á því að öll skilyrði séu uppfyllt. Sækja skal um staðfestinguna á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður (eyðublaðinu RSK 2.30) og getur hann krafið félagið um öll nauðsynleg gögn vegna hennar. Óska þarf staðfestingar fyrir hverja hlutafjáraukningu. Synjun á staðfestingu til félags má skjóta til yfirskattanefndar.

Félagið skal skila lista til ríkisskattstjóra yfir þátttakendur í hlutafjáraukningunni og sjá til þess að aukningin sé skráð í hlutafélagaskrá. Listanum skal skila samhliða öðrum gagnaskilum í janúar.

Ríkisskattstjóri skal halda sérstaka skrá yfir þau félög sem hljóta staðfestingu samkvæmt ákvæði þessu og birta á vefsvæði sínu.

Skilyrði varðandi starfsemi félags

Ef starfsemi félagsins felur í sér eitthvað af eftirtöldu fellur það ekki undir skilyrði um hlutabréfafrádrátt:

  • Viðskipti með fasteignir

  • Útleiga fasteigna eða lausafjár

  • Starfsemi eignarhaldsfélags eða fjárfestingarfélags

  • Starfsemi eftirlitsskyldra aðila samkvæmt 5. grein laga nr. 99/1999, um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi

  • Útseld þjónusta og ráðgjöf sérfræðinga

  • Framleiðsla kvikmynda

  • Mannvirkjagerð og hvers kyns viðhald og endurbætur á mannvirkjum

  • Starfsemi tengd fjárfestingu og/eða rekstri hótela, gistiheimila og veitingastaða

  • Útflutningur og innflutningur vara sem framleiddar eru og þróaðar af öðrum

  • Námuvinnsla

Skilyrði fyrir skattafslætti einstaklings

Kaup á hlutabréfum þurfa að vera í hlutafjáraukningu í félagi sem fengið hefur staðfestingu ríkisskattstjóra. Heimildin á ekki við um síðari kaup eins og endurkaup á hlutabréfum úr hlutafjáraukningu.

Fjárfesting einstaklings í hverju félagi verður að nema að lágmarki 300.000 kr.

Sýna þarf fram á að fjárfestingin sé að fullu greidd.

Einstaklingur sem óskar eftir frádrætti þarf að vera á lista sem viðkomandi félagi ber að skila til ríkisskattstjóra yfir þá sem keypt hafa í hlutafjáraukningu í félaginu. Hlutafjáraukningin þarf að vera skráð í hlutafélagaskrá.

Í tvö ár fyrir skráða hlutafjáraukningu má einstaklingur ekki vera tengdur viðkomandi félagi né félagasamstæðum þess á eftirfarandi hátt:

  • Á grundvelli fjárhagslegra hagsmuna tengdum félaginu eða ef einstaklingur á eða mun eiga rétt á, með beinum eða óbeinum hætti, meira en 30% eignarhlutdeild í félaginu eða atkvæðarétti þess.

  • Einstaklingur telst jafnframt vera tengdur félaginu ef viðskipti hans við félagið vegna hlutafjáraukningarinnar eru ekki sambærileg því sem almennt gerist í viðskiptum milli ótengdra aðila.

Einstaklingur þarf að eiga þau hlutabréf sem voru grundvöllur frádráttar í þrjú ár. Ef bréfin eru seld innan þriggja ára frá því fjárfestingin átti sér stað verður upphaflegi frádrátturinn bakfærður með 15% álagi á söluári bréfanna.

Frádráttur reiknast frá tekjuskattsstofni og/eða fjármagnstekjuskattsstofni. Ef frádráttarheimild er hærri en tekjuskatts- og fjármagnstekjuskattsstofn einstaklings færist það sem umfram er á milli ára þar til frádráttarheimild er að fullu nýtt, þó ekki lengur en í þrjú ár.

Ítarefni

Félög sem hafa hlotið staðfestingu

Ríkisskattstjóri heldur skrá yfir félög og hlutafjáraukningar sem hafa hlotið staðfestingu. Aðeins kaup í slíkum félögum geta veitt rétt til frádráttar.

Þjónustuaðili

Skatt­urinn