Fara beint í efnið

Sækja um starfsleyfi sem tollmiðlari

Skatturinn veitir starfsleyfi til tollmiðlunar.

Umsókn skal lögð fram skriflega til Skattsins, á upplysingar@skatturinn.is.

Skilyrði

  • Umsækjandi verður að vera lögaðili, til dæmis einkahlutafélög eða hlutafélög. Einstaklingar geta ekki sótt um.

  • Stjórnin verður að hafa að lágmarki tvo stjórnarmenn.

  • Stjórnarmenn og daglegur stjórnandi skulu:

    • vera búsettir á Íslandi eða í EES-landi.

    • vera lög- og fjárráða.

    • hafa óflekkað mannorð.

    • mega ekki á síðustu fimm árum hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað í tengslum við atvinnurekstur, hvort sem er samkvæmt almennum hegningarlögum eða öðrum lögum.

Fylgigögn með umsókn

Umsóknin skal innihalda upplýsingar um nöfn, kennitölur og lögheimili umsækjanda, stjórnarmanna og daglegs stjórnanda. Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókninni:

  • Búsforræðisvottorð og sakavottorð stjórnarmanna og daglegs stjórnanda

  • Greinargerð um starfsemina þar sem fram koma:

    • fyrirhugað starfsskipulag.

    • hvar og hvernig starfseminni verður sinnt.

    • hvernig bókhald, varsla gagna og innra eftirlit verður háttað.

    • nöfn þeirra starfsmanna sem uppfylla hæfniskröfur samkvæmt tollalögum.

Kröfur um þekkingu og hæfni starfsmanna

Umsækjandi þarf að sýna fram á að starfsmenn sem annast tollafgreiðslu hafi þekkingu á þeim reglum sem gilda um tollmeðferð vara, þar á meðal:

  • tollflokkun

  • tollskýrslugerð

  • meðferð ótollafgreiddra vara

  • ábyrgð á greiðslu aðflutningsgjalda

  • upplýsingagjöf til tollyfirvalda

  • reglur um greiðslufrest aðflutningsgjalda

Kröfur um stjórnun og innra eftirlit

Umsækjandi skal sýna fram á að stjórnun, innra eftirlit, bókhald og varsla gagna vegna starfseminnar verði með traustum hætti.

Eftir veitingu starfsleyfis

Til að viðhalda starfsleyfinu er gott að hafa eftirfarandi reglur í huga:

  • Upphaf starfsemi skal vera innan 12 mánaða frá veitingu - annars fellur leyfið niður.

  • Samfelld starfsemi: Leyfið fellur niður ef engin þjónusta er veitt í 12 mánuði samfellt.

  • Eftirlit: Tollstjóri getur afturkallað leyfið við gróflegar vanrækslu.

  • Skráning: Tollstjóri heldur opinbera skrá yfir viðurkennda tollmiðlara. Öðrum er óheimilt að kalla sig tollmiðlara.

Þjónustuaðili

Skatt­urinn