Fara beint í efnið

Ung- og smábarnavernd

Í ung- og smábarnavernd er lögð áhersla á að fylgjast með líkamlegum, andlegum og félagslegum þroska barna og veita stuðning og fræðslu eftir þörfum.

Heimavitjanir

Foreldrum nýfæddra barna er boðið upp á heimavitjanir fyrstu vikurnar. Fjöldi vitjana fer eftir þörfum hverrar fjölskyldu. Í heimavitjunum skoðar hjúkrunarfræðingur eða ljósmóðir barnið, metur þroska þess, þyngd og höfuðummál. Foreldrar fá ráðgjöf og fræðslu varðandi ummönnun barnsins og eigin líðan.

Skoðanir á heilsugæslu

Við 6 vikna aldur barnsins er fyrsta skoðun á heilsugæslustöð hjá hjúkrunarfræðingi eða ljósmóður og lækni. Við 3ja mánaða aldur hefjast bólusetningar samkvæmt fyrirmælum sóttvarnalæknis hjá Landlæknisembættinu. Reglulegar skoðanir og þroskamöt eru upp að 4 ára aldri.

Reynt er að hafa samfellu í þjónustu þannig að barnið/fjölskyldan hitta sem oftast sama/sömu hjúkrunarfræðing/ljósmóður og lækni.

Foreldrum er ávallt velkomið að hafa samband umfram þessar skipulögðu skoðanir. Nánar um ung- og smábarnavernd á vef Heilsuveru