Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilbrigðisstofnun Vesturlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Vesturlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Bólusetningar gegn inflúensu og COVID-19

Árleg inflúensubólusetning á HVE

Árleg bólusetning gegn influensu er auglýst á hverri stöð fyrir sig hjá HVE meðal annars á samfélagsmiðlum. Oftast er byrjað að bólusetja í lok september eða byrjun október.

Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetninu:

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.

  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrasjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og örðum ónæmisbælandi sjúkdómum.

  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.

  • Þungaðar konur.

Vakin er athygli á því að ofangreindir áhættuhópar eiga rétt á bóluefninu sér að kostnaðarlausu en greiða þarf komugjald skv. reglugerð nr. 225/2018.

Heilsugæslan býður ekki upp á þjónustu til fyrirtækja.

Að gefnu tilefni er minnt á að einstaklinga má bólusetja jafnvel þó inflúensufaraldur sé hafinn því einungis tekur um 1 til 2 vikur að mynda verndandi mótefni eftir bólusetningu.

Sjá ítarlegar upplýsingar hjá Embætti landlæknis.

COVID-19 bólusetningar

Bólusetningar gegn Covid-19 eru í boði á heilsugæslustöðvum HVE. Tímapantanir á viðkomandi heilsugæslustöð.

Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Aðalskrif­stofa

Merkigerði 9,
300 Akranes

432 1000
hve@hve.is

kt. 630909-0740

Akranes
432 1000

Borgarnes
432 1430

Búðardalur
432 1450

Grundarfjörður
432 1350

Hólmavík
432 1400

Hvammstangi
432 1300

Ólafsvík
432 1360

Stykkishólmur
432 1200