Fara beint í efnið

Olíugjaldsskyld starfsemi

Greiða skal olíugjald af gas-, stein- og díselolíu sem nothæf er sem eldsneyti á ökutæki. Olíugjaldið er lagt á hvern lítra af olíu og ofan á það leggst virðisaukaskattur.

Gjaldskyldir aðilar

Gjaldskyldir aðilar eru:

  • þeir sem framleiða eða stunda aðvinnslu olíu sem er gjaldskyld,

  • þeir sem flytja inn, til endursölu eða eigin nota, olíu sem er gjaldskyld,

  • þeir sem kaupa olíu innanlands til endursölu.

Þeir sem kaupa eldsneytið bera hins vegar gjaldið jafnóðum við eldsneytiskaup.

Undanþága - lituð olía

Olía er undanþegin gjaldskyldu í eftirfarandi tilvikum þegar í hana hefur verið bætt litar- og merkiefnum:

  1. Til nota á skip og báta.

  2. Til húshitunar og hitunar almenningssundlauga.

  3. Til nota í iðnaði og á vinnuvélar.

  4. Til nota á dráttarvélar.

  5. Til raforkuframleiðslu.

  6. Til nota á ökutæki sem ætluð eru til sérstakra nota.

  7. Til nota á beltabifreiðar og námuökutæki sem eingöngu eru notuð utan vega eða á lokuðum vinnusvæðum.

  8. Til nota á bifreiðir í eigu björgunarsveita.

Litaða olíu má ekki nota sem eldsneyti í öðrum tilvikum. Komi í ljós að notuð sé lituð olía á ökutæki sem ekki hefur til þess heimild varðar það fjársektum.

Nánari upplýsingar um olíugjald hjá Skattinum

Tilkynning um olíugjaldsskylda starfsemi

Þjónustuaðili

Skatt­urinn