Móttaka gagna
Á þessari síðu
Almennt
Það getur auðveldað lögreglu að hafa meiri gögn að vinna með þegar reynt er að varpa ljósi á kærð eða tilkynnt mál.
Gögn geta til dæmis verið:
eitthvað sem er skrifað,
myndir og myndbönd.
Að koma gögnum til lögreglunnar
Þú getur:
notað örugga gagnagátt lögreglunnar,
sent þau í tölvupósti,
komið með gögnin á lögreglustöð.
Örugg vefgátt
Nokkur umdæmi lögreglunnar nota örugga gátt Signet transfer.
Það þarf rafræn skilríki til þess að senda gögn í gegnum gáttina.
Tölvupóstur
Oft er þægilegt að senda gögn til lögreglunnar með tölvupósti.
Upplýsingar sem þurfa að fylgja með þegar gögn eru send til lögreglunnar:
nafn og kennitala
samskiptaupplýsingar, eins og netfang og símanúmer
málanúmer
Netföng
Eftirfarandi lögregluumdæmi taka aðeins á móti gögnum í tölvupósti:
Vestmannaeyjar vestmannaeyjar@logreglan.is
Austurland austurland@logreglan.is
Norðurland vestra nordurland.vestra@logreglan.is
Vestfirðir vestfirdir@logreglan.is
Vesturland vesturland@logreglan.is
Þjónustuaðili
Lögreglan