Fara beint í efnið

Lyfsöluleyfi apóteks í rekstri

Umsókn um lyfsöluleyfi vegna apóteks í rekstri

Lyfsöluleyfi veitir handhafa þess rétt til að kaupa lyf af heildsöluleyfishöfum og til að afhenda lyf gegn lyfjaávísun, í lausasölu, í lyfjakistur skipa og flugvéla og til stofnana sem gerður hefur verið sérstakur samningur við. Á grundvelli lyfsöluleyfis er heimilit að stunda fjarsölu með lyf.

Lyfjastofnun sendir umsóknir um lyfsöluleyfi til viðkomandi sveitastjórnar til umsagnar.

Umsókninni þarf að fylgja:

  • afrit af starfsleyfi umsækjanda til að mega starfa sem lyfjafræðingur á Íslandi

  • staðfesting á því að umsækjandi hafi starfað sem lyfjafræðingur í a.m.k. tvö ár

  • afrit af samningi við rekstrarleyfishafa, ef við á

Fyrir hverja

Einungis þeir geta fengið leyfi sem hafa gilt starfsleyfi sem lyfjafræðingur hér á landi og hafa starfað sem lyfjafræðingar í minnst tvö ár, þar af minnst 12 mánuði í lyfjabúð á Evrópska efnahagssvæðinu.

Afhending

Leyfið er sent í tölvupósti til umsækjanda.

Kostnaður

Kostnaður er samkvæmt gjaldskrá Lyfjastofnunar.

Umsókn um lyfsöluleyfi vegna apóteks í rekstri

Þjónustuaðili

Lyfja­stofnun

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00