Fara beint í efnið

Leyfi til að gegna afmörkuðum störfum lyfjafræðinga tímabundið

Umsókn um að gegna afmörkuðum störfum lyfjafræðings tímabundið

Lyfjafræðinemi, sem hefur lokið fjórða árs námi í lyfjafræði og tveggja mánaða verknámi í apóteki, getur fengið leyfi til að gegna afmörkuðum störfum lyfjafræðings tímabundið.

Lyfjafræðineminn má aðeins gegna þessum störfum í viðurvist ábyrgs lyfjafræðings eða staðgengils hans sem einnig skal vera lyfjafræðingur.

Í umsókninni þarf að tilgreina:

  • það apótek sem lyfjafræðineminn hyggst starfa í

  • starfstímabil

  • ábyrgan lyfjafræðing

Einnig þarf að senda inn staðfestingu á því að tveggja mánaða verknámi í apóteki sé lokið. Ef þú leggur stund á lyfjafræðinám við aðra menntastofnun en Háskóla Íslands þarft þú að senda inn staðfestingu á því að fjórða ári sé lokið.

Afhending

Leyfið er sent í tölvupósti á netfang umsækjanda og ábyrgs lyfjafræðings.

Kostnaður

Ekkert kostar að sækja um.

Umsókn um að gegna afmörkuðum störfum lyfjafræðings tímabundið

Þjónustuaðili

Lyfja­stofnun

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00