4542 leitarniðurstöður
Engin tilfelli af E. coli greindust í dag. Í dag 22. júlí voru rannsökuð saursýni frá 15 einstaklingum sem borist hafa undanfarna daga m.t.t. E. coli sýkinga og greindist enginn með sýkinguna.
Staðfestum tilfellum COVID-19 kórónaveirunnar utan Kína hefur fjölgað undanfarna daga. Þar á meðal í Evrópu þar sem tilfelli á Norður-Ítalíu nálgast á þriðja hundrað. Grunur leikur á að eitt tilfelli hafi komið upp á Tenerife á Spáni en endanleg staðfesting á því liggur ekki fyrir.
Sóttvarnalæknir hefur gefið út skýrslu um þátttöku í almennum bólusetningum á Íslandi á árinu 2017. Í skýrslunni kemur fram að þátttaka á árinu 2017 var svipuð og á árinu 2016, þar sem þátttaka yngstu árganganna í bólusetningum er lakari en áður hefur verið.
Í tilefni af Alþjóðlegum forvarnardegi sjálfsvíga mánudaginn 10. september 2019 verður haldið málþing í húsnæði Decode við Sturlugötu 8, milli kl. 15:00 – 17:00. Kyrrðarstundir verða einnig haldnar í kirkjum á landsbyggðinni til að minnast þeirra sem hafa fallið fyrir eigin hendi.
Um 4000 nemendur í 7., 8. og 9. bekk grunnskóla sem taka þátt í verkefninu Tóbakslaus bekkur fá spilastokk að gjöf frá Embætti landlæknis. Nemendurnir eru í u.þ.b. 200 bekkjum víðsvegar um landið.
Menntamálastofnun auglýsir eftir metnaðarfullum námsefnishöfundum í afmarkað verkefni við að semja byrjendanámsefni (2. stig) í íslensku sem öðru tungumáli ætlað fyrir nemendur á mið- og unglingastigi grunnskólans.
Í nýrri samantekt er farið yfir tíðni öndunarfærasýkinga og innlagna vegna þeirra og staðan á Íslandi borin saman við stöðuna í Evrópu.
Í síðustu viku (8. viku) var inflúensa A staðfest hjá 32 einstaklingum, sem er nokkur aukning miðað við undanfarandi vikur
Þann 8. febrúar síðastliðinn undirrituðu Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra yfirlýsingu um sameiginlegt átak til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi.
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, úthlutaði í dag tæpum 90 milljónum króna í styrki úr Lýðheilsusjóði til 172 verkefna og rannsókna. Styrkt voru fjölbreytt verkefni um land allt.