Veðurstofan hefur gefið út gula og svo appelsínugula viðvörun fyrir allt landið á morgun og þar með talið Reykjanesið vegna slæmrar veðurspár frá kl 10-22 á morgun 06.04.2026. Gert er ráð fyrir hríðarveðri í upphafi með slæmu skyggni og snjókomu með tilheyrandi ófærð sem getur fylgt. Eftir það verður slydda og í kjölfarið töluverð rigning en veður gengur ekki almennilega niður fyrr en um kvöldið. En búast má við samgöngutruflunum frá 12-19 á morgun meðan enn er hríðarveður.