Nokkur viðbúnaður varð fyrr í vikunni á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í Reykjavík þegar þangað kom maður vopnaður haglabyssu. Líkt og ávallt þegar sést til vopnaðra manna á almannafæri voru vopnaðir lögreglumenn sendir í málið, en blessunarlega reyndist viðkomandi ekki hafa neitt illt í hyggju heldur hugðist hann skila vopninu inn til förgunar.