10000 leitarniðurstöður
Mikið álag var á Mínum síðum á Heilsuvera.is og á Heklu-heilbrigðisneti í dag. Þetta álag birtist einkum í hægagangi í kerfinu og þjónusturofi í einhverjum tilfellum. Lyfseðlagáttin er hluti af Heklu-heilbrigðisneti og var aðgangur lyfjabúða að gáttinni stopull.
Fjársýslan tekur ekki við óinnleystum ávísunum frá og með 15. febrúar 2023.
Embætti landlæknis hefur gefið út nýtt eyðublað fyrir tilkynningu um rekstur heilbrigðisþjónustu sem tekur gildi frá og með 17. nóvember 2021. Heilbrigðisstarfsmönnum og öðrum sem hyggjast hefja rekstur heilbrigðisþjónustu ber að tilkynna það til landlæknis.
Nýtt tölublað Talnabrunns, fréttabréfs landlæknis um heilbrigðisupplýsingar, hefur verið gefið út. Umfjöllunarefnið að þessu sinni er dánartíðni og dánarorsakir árið 2021.
Óvenjumargar tilkynningar um meltingartengd einkenni fóru að berast til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og sóttvarnalæknis tengdar helginni 8.-9. júlí 2023 og dögunum þar á eftir. Einnig skapaðist mikil umræða um slík veikindi á samfélagsmiðlum.
Starfsáætlun Embættis landlæknis fyrir árin 2020-2021 er komin út á vef embættisins.Í starfsáætluninni eru settar fram helstu áherslur í fjölbreyttu starfi embættisins fram til ársins 2021.
Komin er út skýrsla norræns samstarfshóps varðandi utanspítalaþjónustu með áherslu á sjúkraflutninga.
Námskeið fyrir leik- og grunnskólakennara í kennslu geðræktarefnisins Vinir Zippýs verður haldið þann 7. september nk. kl. 10:00 – 16:30 á Hótel Reykjavík Centrum.
Sóttvarnalæknir hefur gefið út skýrslu um þátttöku í almennum bólusetningum á Íslandi á árinu 2019 sem birt hefur verið á vef embættis landlæknis.
Laugardaginn 29. júní klukkan 14-17 býður Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra til opnunarhófs gagnagrunns sáttanefndabóka og málþings um störf sáttanefnda á Íslandi í húsakynnum rannsóknasetursins á Einbúastíg 2 á Skagaströnd.