Um 140 manns taka þátt í Fagráðstefnu skógræktar 2026 fer fram á Stracta Hótel Hellu 18. og 19. mars. Þema fyrri dags ráðstefnunnar að þessu sinni er lífið í skóginum. Þar verður bæði hugað að lífríki skóga, gæðamálum í skógrækt og samspili fólks og skóga. Seinni daginn verða fjölbreytt erindi um ýmis skógarmálefni. Ráðstefnunni verður streymt beint á vefnum.