10000 leitarniðurstöður
Nýr Landspítali ohf. (NLSH) hefur óskað eftir umsóknum um þátttökurétt í lokuðu útboði á hönnun nýs húsnæðis legudeildar fyrir Sjúkrahúsið á Akureyri, ásamt skipulagi lóðar m.t.t. flæði sjúklinga, gesta og aðfanga.
Heilbrigðisstofnun Austurlands hefur nú lokið við öll 5 Grænu skrefin, fyrst allra heilbrigðisstofnana. Það sem hefur einkennt vinnuna hjá HSA er samtakamáttur starfsstöðva en allar hafa þær stigið í takt og innleitt í sameiningu umhverfisvænar aðgerðir.
Undanfarin ár hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) tileinkað bólusetningum eina viku á ári. Í ár eru það dagarnir 23.–29. apríl. Átakið er stutt af Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins (ECDC).
Einstaklingur með smitandi mislinga var um borð í vélum Icelandair (FI455) frá London til Keflavíkur og Air Iceland Connect (NY356) frá Reykjavík til Egilsstaða dagana 14. og 15. febrúar síðastliðinn.
Frá og með 21. febrúar 2024 er línuívilnun í þorski felld niður.
Í nýjum Talnabrunni, fréttabréfi landlæknis um heilbrigðisupplýsingar, er fjallað um skýrsluna Þungunarrof á Norðurlöndum 2017 sem var nýlega gefin út af finnsku heilsu- og velferðarstofnuninni, THL.
Inflúensa af A/H5 stofni hefur greinst í sýnum úr ýmsum sjófuglum og fleiri tegundum fugla.
Embætti landlæknis hefur birt í samstarfi við Rannsóknarstofu Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum (RHLÖ) drög að ráðleggingum um mataræði fyrir hrumt eða veikt eldra fólk til umsagnar.
Almenn bólusetning hjá börnum gegn pneumókokkum hófst hér á landi 2011. Pneumókokkabakteríur geta valdið margvíslegum sýkingum eins og miðeyrnabólgu, kinnholubólgu, lungnabólgu og alvarlegum ífarandi sýkingum eins og blóðsýkingum og heilahimnubólgu.
Mánaðarlega eru gefnar út starfsemistölur fyrir sjúkrahúsið og má sjá ítarlegri upplýsingar í meðfylgjandi skjali (PDF). Helstu starfsemistölur eru þær að fjöldi dvalardaga ofangreint tímabil eru 15.394 og er meðaldvöl á deild 4,7 dagar. Flestir sjúklinganna eru lagðir inn í bráðainnlögn en þær eru rúmlega 76% af heildarinnlögnum