10000 leitarniðurstöður
Sóttvarnalæknir ræður nú frá ónauðsynlegum ferðum til Suður-Kóreu og Írans, auk Kína og fjögurra héraða á Norður-Ítalíu. Þá er hvatt til sérstakrar varúðar þegar ferðast er til annarra svæða á Ítalíu, Tenerife á Spáni, Japans, Singapúr og Hong Kong.
Lyfjastofnun hefur verið tilkynnt um fimm alvarlegar aukaverkanir, þar af fjögur andlát, sem hugsanlega kunna að tengjast bólusetningu við SARS-CoV-2 veirunni. Í öllum tilfellunum erum að ræða aldraða einstaklinga á hjúkrunarheimilum með undirliggjandi sjúkdóma.
Á meðan heimsfaraldur geisar hefur sóttvarnalæknir ráðlagt öllum íbúum Íslands að ferðast ekki til áhættusvæða sem í dag eru öll lönd og svæði heims nema Grænland.
Í dag, 17. maí er haldið upp á Dag lækna í fyrsta sinn á Íslandi til að beina ljósinu að og viðurkenna mikilvægt framlag þeirra gagnvart skjólstæðingum og samfélaginu í heild.
Ríkislögreglustjóri, í samráði við sóttvarnalækni, hefur ákveðið að lækka almannavarnastig frá neyðarstigi niður á hættustig vegna kórónuveiru faraldursins (COVID-19). Neyðarstigi almannavarna var lýst yfir 6 mars s.l. þegar fyrsta smit var staðfest hér á landi.
Vegna mikillar aukningar á PCR prófum undanfarna daga verður fólk að gera ráð fyrir allt að þremur sólarhringum þangað til niðurstaða berst.
Fyrirhugað er að bólusetningar gegn COVID-19 hefjist hér á landi 29. desember nk. Óvíst er að hún geti hafist þann dag á öllu landinu en það ræðst af flutningi bóluefnisins út á land, veðurskilyrðum og aðbúnaði heilsugæslunnar.
Nú eru vottorð um jákvæð hraðpróf vegna COVID-19 komin í Heilsuveru.