Embætti landlæknis hefur gefið út bráðabirgðatölur um sjálfsvíg fyrstu sex mánuði ársins 2021. Opinber tölfræði um sjálfsvíg byggir á dánarmeinaskrá landlæknis. Fjöldi sjálfsvíga tekur til andláta þar sem undirliggjandi dánarorsök á dánarvottorði er skráð vísvitandi sjálfsskaði.