Erlendum ríkisborgara hefur verið vísað frá Íslandi, en um er að ræða karlmann á fertugsaldri. Hann var handtekinn á höfuðborgarsvæðinu um kaffileytið í fyrradag í kjölfar tilkynningar um þjófnað í verslun. Maðurinn var færður á lögreglustöð og við yfirheyrslu játaði hann sök. Hinir stolnu munir voru haldlagðir og komið aftur í réttar hendur. Þjófurinn kom til Íslands á þriðjudagsmorgun og hafði því dvalið á Íslandi í fáeinar klukkustundir þegar málið kom upp.