Fara beint í efnið

Kerfiskennitala til erlends borgara vegna stjórnarsetu

Kerfiskennitölur eru gefnar út til auðkenningar á einstaklingum vegna skammrar dvalar á Íslandi eða annarra ástæðna. Kerfiskennitala veitir engin réttindi.

Umsókn um kerfiskennitölu til erlends ríkisborgara vegna stjórnarsetu tekur einungis til þeirra sem eru stofnendur félaga, sitja í stjórn, eru framkvæmdastjórar eða prókúruhafar félaga á Íslandi.

Beiðni um kerfiskennitölu til erlends borgara vegna stjórnarsetu

Beiðnin þarf að berast með tilkynningu um stofnun félags eða tilkynningu um
breytingu þar sem verið er að skrá viðkomandi aðila í hlutverk í félaginu.

Þjónustuaðili

Skatt­urinn