Fara beint í efnið

Hvernig á að farga lyfjum?

Öruggasta leiðin til að losa sig við gömul lyf og lyf sem er ekki lengur þörf fyrir er að skila þeim í apótek til eyðingar.

Ekki má henda lyfjum í rusl, vask eða klósett vegna umhverfisáhrifa.

Apótek eiga að taka endurgjaldslaust við lyfjum frá sjúklingum og koma þeim til eyðingar – að því gefnu að um sé að ræða lyf sem afgreidd hafa verið í apóteki.

Skila þarf sprautum og sprautunálum í lokuðum ílátum til að koma í veg fyrir að starfsfólk skaði sig á oddhvössum hlutum. Hægt er að fá sérstök nálabox í apótekum.

Hvers vegna fást lyf ekki endurgreidd?

Apótek þurfa að ábyrgjast að þau lyf sem sjúklingar fá afgreidd hafi verið meðhöndluð og geymd á réttan hátt þannig að gæði þeirra séu tryggð. Það er ekki hægt ef lyfið hefur farið út úr apóteki með viðskiptavini, þ.e. út fyrir ábyrgðarsvæði apóteksins.

Þess vegna er apóteki er ekki heimilt að selja öðrum þau lyf sem skilað er, jafnvel þótt um sé að ræða óáteknar lyfjapakkningar og fyrningartími lyfjanna sé ekki útrunninn.

Síðast yfirfarið: 9. september 2026

Þjónustuaðili

Lyfja­stofnun

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00