Fara beint í efnið

Verklag um fylgdarlaus börn sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd

Þetta verklag er nýtt og enn í vinnslu.

Í þessari handbók er að finna sameiginlegt verklag Útlendingastofnunar, Vinnumálastofnunar, Barna- og fjölskyldustofu, Lögreglunnar á Suðurnesjum, Ríkislögreglustjóra og barnverndarþjónustna.

    B. hluti - Barn í fylgd annarra en foreldra eða forsjáraðila

    1. Útlendingastofnun móttekur umsókn fylgdarlauss barns frá lögreglu í gegnum LÖKE.

    2. Útlendingastofnun tilkynnir Barna- og fjölskyldustofu að fylgdarlaust barn hafi sótt um vernd og hvaða barnaverndarþjónusta fari með mál barns.

    3. Barna- og fjölskyldustofa móttekur tilkynningu frá Útlendingastofnun og stofnar hagsmunagæslumál í nafni barns. Barna- og fjölskyldustofa setur sig í samband við þá barnaverndarþjónustu sem fer með mál barns og tilkynnir þjónustunni um opnun hagsmunagæslumáls.

    4. Vinnumálastofnun móttekur tilkynningu lögreglu í gegnum LÖKE um komu fylgdarlauss barns í fylgd fullorðins aðila í úrræði á þeirra vegum. Þegar fyrir liggur hjá Vinnumálastofnun í hvaða úrræði barn og hinn fullorðni einstaklingur munu dvelja, skal stofnunin upplýsa Útlendingastofnun og þá barnaverndarþjónustu sem fyrst kom að máli barns í hvaða sveitarfélagi úrræðið er staðsett. Vinnumálastofnun skal upplýsa barnaverndarþjónustu ef fylgdarlaust barn í fylgd fullorðins aðila flytur á milli búsetuúrræða.

    5. Barnaverndarþjónusta sem fyrst kom að máli barns fylgir málinu eftir þar til barnaverndar- og hagsmunagæslumálið er formlega flutt til barnaverndarþjónustu þess sveitarfélags þar sem fyrirhugað er að barnið verði dvalfast.

    6. Barnaverndarþjónusta sem fer með mál barns ber ábyrgð á að barn fái notið þjónustu í samræmi við þarfir þess og í samræmi við lög. Barnaverndarþjónusta kannar aðstæður barns í umsjá þeirra aðila sem barn dvelur hjá. Barnaverndarþjónusta vinnur mál barns í samvinnu við foreldra eða forsjáraðila þess, eftir því sem við á.

    7. Vinnumálastofnun veitir barni sömu þjónustu og þeim börnum sem koma í fylgd með foreldri eða forsjáraðila, s.s. að skrá barn skóla og að tryggja aðgengi þess að nauðsynlegri eða viðeigandi heilbrigðisþjónustu. Það er hins vegar á ábyrgð barnaverndarþjónustu að fylgja því eftir að barn fái notið þessara réttinda.

    8. Útlendingastofnun skipar barni löglærðan talsmann og upplýsir viðkomandi um hvaða barnaverndarþjónusta fer með mál barns. Barnaverndarþjónusta fær tilkynningu frá Útlendingastofnun um þann talsmann sem fer með mál barns.

    9. Útlendingastofnun metur hvort farið verði fram á aldursgreiningu í máli barns.

    10. Útlendingastofnun sendir boð á barnaverndarþjónustu og löglærðan talsmann barns og boðar barn í aldursgreiningu, ef niðurstaða matsins er sú að þess sé þörf.

    11. Útlendingastofnun metur hvaða málsmeðferð fer fram í máli barns á grundvelli aðstæðna þess og eðli umsóknar. Þegar málsmeðferð barns liggur fyrir er viðeigandi barnaverndarþjónusta upplýst um það.

    12. Útlendingastofnun leggur mat á, í samráði við barnaverndarþjónustu, hvort viðtal við barn vegna umsóknar þess um alþjóðlega vernd fari fram í Barnahúsi eða hjá Útlendingstofnun.

    13. Ef viðtal fer fram í Barnahúsi sendir Útlendingastofnun beiðni á barnaverndarþjónustu um að óska eftir viðtali fyrir barn vegna umsóknar þess um alþjóðlega vernd. Þegar dagsetning og staðsetning viðtals liggur fyrir sendir Útlendingastofnun viðtalsboð á löglærðan talsmann barns, barnaverndarþjónustu og túlk.

    14. Að viðtali loknu sendir Útlendingastofnun löglærðum talsmanni barns og barnaverndarþjónustu afrit af samantekt viðtalsins. Löglærður talsmaður og barnaverndarþjónusta geta óskað eftir myndbandsupptöku af viðtalinu hjá Útlendingastofnun.

    15. Að viðtali loknu er löglærðum talsmanni barns veittur frestur til að leggja fram greinargerð í málinu og gögn ef því er að skipta. Frestur til að skila gögnum og greinargerð getur verið allt að 14 dagar, fer eftir málsmeðferð.

    16. Útlendingastofnun leggur mat á gögn sem barn og hinn fullorðni aðili hafa meðferðis til þess að meta tengsl þeirra. Útlendingastofnun tilkynnir barnaverndarþjónustu og Barna- og fjölskyldustofu niðurstöðu matsins.

    17. Ef niðurstaða Útlendingastofnunar er sú að barn er enn metið fylgdarlaust þrátt fyrir að vera í fylgd með fullorðnum einstakling, þá gildir A - hluti verklagsins.

    18. Barnverndarþjónusta skal hafa samband við Barna- og fjölskyldustofu óháð niðurstöðu mats Útlendingastofnunar, til þess að fara yfir næstu skref í máli barns eftir að mat Útlendingastofnunar liggur fyrir.