Fara beint í efnið

Verklag um fylgdarlaus börn sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd

Þetta verklag er nýtt og enn í vinnslu.

Í þessari handbók er að finna sameiginlegt verklag Útlendingastofnunar, Vinnumálastofnunar, Barna- og fjölskyldustofu, Lögreglunnar á Suðurnesjum, Ríkislögreglustjóra og barnverndarþjónustna.

    A. hluti - Barn sem kemur eitt á ferð

    1. Útlendingastofnun móttekur umsókn fylgdarlauss barns frá lögreglu í gegnum LÖKE.

    2. Útlendingastofnun tilkynnir Barna- og fjölskyldustofu að fylgdarlaust barn hafi sótt um vernd og hvaða barnaverndarþjónusta fari með mál barns.

    3. Barna- og fjölskyldustofa móttekur tilkynningu frá Útlendingastofnun og stofnar hagsmunagæslumál í nafni barnsins. Barna- og fjölskyldustofa hefur samband við þá barnaverndarþjónustu sem fer með mál barns og tilkynnir þjónustunni um opnun hagsmunagæslumáls.

    4. Barnaverndarþjónusta sem fer með mál barns pantar tíma fyrir barnið í skyldubundna heilbrigðisskoðun (e. first medical check) hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu (Heilbrigðisskoðun innflytjenda). Ef barn er með langvinn veikindi og/eða fötlun fer heilbrigðisskoðun fram á Barnaspítala Hringsins.

    5. Barnaverndarþjónusta sem fer með mál barns ber ábyrgð á að barnið njóti þjónustu í samræmi við þarfir þess og í samræmi við lög. Barnaverndarþjónusta vinnur mál barns í samvinnu við forsjáraðila, eftir því sem við á.

    6. Útlendingastofnun skipar barni löglærðan talsmann og upplýsir viðkomandi um hvaða barnaverndarþjónusta fer með mál barns. Barnaverndarþjónusta fær tilkynningu frá Útlendingastofnun um þann talsmann sem fer með mál barns.

    7. Útlendingastofnun metur hvort farið verði fram á aldursgreiningu í máli barns. Útlendingastofnun sendir boð á barnaverndarþjónustu og löglærðan talsmann barns og boðar barn í aldursgreiningu, ef niðurstaða matsins er sú að þess sé þörf.

    8. Útlendingastofnun metur hvaða málsmeðferð fer fram í máli barns á grundvelli aðstæðna þess og eðli umsóknar. Þegar málsmeðferð barns liggur fyrir er viðeigandi barnaverndarþjónusta upplýst um það.

    9. Útlendingastofnun leggur mat á, í samráði við barnaverndarþjónustu, hvort viðtal við barn vegna umsóknar þess um alþjóðlega vernd fari fram í Barnahúsi eða hjá Útlendingastofnun.

    10. Ef viðtal við barn fer fram í Barnahúsi sendir Útlendingastofnun beiðni til barnaverndarþjónustu um að óska eftir viðtali fyrir barn vegna umsóknar þess um alþjóðlega vernd. Þegar dagsetning og staðsetning viðtals liggur fyrir sendir Útlendingastofnun viðtalsboð á löglærðan talsmann barns, barnaverndarþjónustu og túlk.

    11. Að viðtali loknu sendir Útlendingastofnun löglærðum talsmanni barns og barnaverndarþjónustu afrit af samantekt viðtalsins. Löglærður talsmaður og barnaverndarþjónusta geta óskað eftir myndbandsupptöku af viðtalinu hjá Útlendingastofnun.

    12. Að viðtali loknu er löglærðum talsmanni barns veittur frestur til að leggja fram greinargerð í málinu og gögn ef því er að skipta. Frestur til að skila gögnum og greinargerð getur verið allt að 14 dagar , fer eftir málsmeðferð.

    13. Þegar löglærður talsmaður barns hefur skilað greinargerð og gögnum tekur við áframhaldandi rannsókn málsins hjá Útlendingastofnun. Málshraði er misjafn og fer það eftir eðli og umfangi máls. Hluti af rannsókn máls er að kanna einstaklingsbundnar aðstæður barns, m.a. með því að afla viðeigandi upplýsinga frá barnaverndarþjónustu sem fer með mál barns, svo sem samskipti við foreldra barns, barnaverndaryfirvöld í viðkomandi ríki, upplýsingar um aðstæður og líðan barns og annað sem kann að skipta máli. Rannsókn er mismunandi eftir málsmeðferð.

    14. Barnaverndarþjónusta getur að eigin frumkvæði, á öllum stigum máls, komið upplýsingum og gögnum til Útlendingastofnunar sem þjónustan telur geta haft .þýðingu fyrir úrlausn þess.

    15. Ef til stendur að synja barni um vernd, sem er með mál í efnismeðferð, ber Útlendingastofnun að óska eftir umsögn Barna- og fjölskyldustofu áður en ákvörðun er tekin í málinu.

    16. Þegar ákvörðun Útlendingastofnunar liggur fyrir í málinu er hún send löglærðum talsmanni barns og barnaverndarþjónustu. Talsmaður barns skal birta ákvörðun fyrir barni, að viðstöddum starfsmanni barnaverndarþjónustu. Tryggja skal að barn skilji efni ákvörðunar og réttaráhrif hennar og mikilvægt er að upplýsa barn og barnaverndarþjónustu um kærurétt, tímafresti og önnur atriði sem kunna að hafa þýðingu í málinu. Ákvörðun Útlendingastofnunar réttaráhrif hennar eru mismunandi eftir málsmeðferð.

    17. Útlendingastofnun sendir tilkynningu um niðurstöðu í máli barns til Barna- og fjölskyldustofu.

    18. Framhald málsins ræðst af því hvort umsókn barns verði samþykkt eða synjað.