Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók
Þjónustuaðili:
©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Öll réttindi áskilin
1. útgáfa 2026
Framsetning á niðurstöðum stöðu- og framvinduprófa
Megintilgangur þess að leggja próf fyrir nemendur er að fá upplýsingar um árangur af kennslu, hver staða nemenda er og hver næstu skref þurfa að vera til þess efla og styrkja nám. Eitt meginmarkmið með framsetningu á niðurstöðum stöðu- og framvinduprófanna er að uppfylla þennan tilgang með því að veita upplýsingar um stöðuna svo hægt sé að skipuleggja kennslu stakra nemenda, bekkjar eða á skólavísu með árangursríkum hætti. Hringrás mats og kennslu lýsir ferlinu skýrt þar sem markviss öflun og notkun gagna um árangur nemenda í námi leggur grunninn.

Niðurstöður stöðu- og framvinduprófanna eru teknar saman í texta, í töflum og á myndrænu formi, bæði fyrir prófin í heild og hvern inntaksflokk. Þær eru settar fram á mælitölu, raðeinkunn og sem hlutfall réttra svara.
Notkun mælitalna gerir það kleift að setja niðurstöður ólíkra prófa á sama kvarða svo hægt sé að bera þær saman. Það auðveldar kennurum að átta sig betur á samspili lykilþátta náms og sjá hvar styrk- og veikleikar nemenda liggja.
Mælitölur eru á kvarðanum 1-19 þar sem mælitalan 10 er alltaf landsmeðaltal. Mælitala lýsir því hvar nemandi er staddur í samanburði við jafnaldra og landsmeðaltal. Nemendur með hærri mælitölu en 10 eru þá yfir landsmeðaltali og nemendur með lægri mælitölu eru fyrir neðan landsmeðaltal.
Hverri mælitölu fylgir lýsing á stöðu nemandans og almennar upplýsingar um næstu áherslur í námi og nýtast þannig við túlkun á niðurstöðum og ákvörðun um næstu skref.
Nemendur með mælitöluna 7 og undir þurfa sérstök inngrip og mælst er til þess að kennarar fylgi þeim eftir með nauðsynlegum aðgerðum.