Fara beint í efnið

Skráningareglur ökutækja

Þjónustuaðili:

Síðast uppfært:

1. febrúar 2026 -

Gildir frá: 01.06.2024. Skráningareglur ökutækja eru fyrir fagaðila sem sinna skráningum í umboði Samgöngustofu eða tilkynna breytingar í ökutækjaskrá samkvæmt lögum.

    Skráningarmerki og plötugeymsla

    Eftirtaldir aðilar geta gert samning um að vinna í umboði Samgöngustofu hvað varðar geymslu og afhendingu skráningarmerkja (kallaðir þjónustuaðilar):

    • Faggiltar skoðunarstofur ökutækja

    • Umboð (ökutækja) með fulltrúa A

    Efni kaflans

    Pöntun skráningarmerkja

    Pöntun skráningarmerkja fer fram hjá þjónustuaðila (skoðunarstöð). Einnig er hægt að panta skráningarmerki rafrænt á heimasíðu Samgöngustofu.

    • Við pöntun ber að skrá upplýsingar um afgreiðsluaðila pöntunar (viðeigandi þjónustuaðila).

    • Tilgreina ber afhendingarstað (viðkomandi þjónustuaðili).

    • Afgreiðslufrestur skráningarmerkja er yfirleitt þrír virkir dagar. Þó er unnt að sækja um flýtiafgreiðslu og koma merkin þá til Samgöngustofu frá framleiðsluaðila sama dag ef pantað er fyrir kl. 9:00 að morgni en annars næsta dag.

    Gjaldtaka

    • Gjald Samgöngustofu fyrir pöntun og smíði skráningarmerkja er 6.736 krónur fyrir hvert stykki.

    • Gjald Samgöngustofu fyrir flýtipöntun skráningarmerkja er 3.341 króna fyrir hvert stykki og leggst það ofan á grunngjald pöntunar og smíði.

    Tölvuvinnsla

    Þjónustuaðilar (skoðunarstöðvar) skrá sjálfir pantanir skráningarmerkja í Ekju.