Skráningareglur ökutækja
Þjónustuaðili:
Gildir frá: 01.06.2024. Skráningareglur ökutækja eru fyrir fagaðila sem sinna skráningum í umboði Samgöngustofu eða tilkynna breytingar í ökutækjaskrá samkvæmt lögum.
Afskráningar og endurskráningar
Eftirtaldir aðilar geta gert samning um að vinna í umboði Samgöngustofu hvað varðar móttöku umsókna um afskráningu og endurskráningu, og um tilkynningu til Samgöngustofu um endurskráningu (kallaðir þjónustuaðilar):
Faggiltar skoðunarstofur ökutækja
Viðurkenndir úrvinnsluaðilar ökutækja
Efni kaflans
Afskráning ökutækis til úrvinnslu
Heimilt er að afskrá ökutæki þegar því er skilað til úrvinnslu.
Eigendur geta sótt um afskráningu ökutækis sem skila á til úrvinnslu eða sem skilað hefur verið til úrvinnslu. Sé umsóknin lögð inn áður en ökutæki er skilað er hún gerð með stafrænum hætti og hún svo staðfest af úrvinnsluaðila við móttöku ökutækisins á úrvinnslustöð. Einnig er í boði að fara með ökutækið fyrst til úrvinnsluaðila og fylla þar út umsókn um afskráningu (skilavottorð á pappír) í samvinnu við úrvinnsluaðila og framvísa henni svo hjá þjónustuaðila.
Móttaka stafrænna tilkynninga og umsókna
Samgöngustofa hefur það að markmiði að gera þjónustu sína stafræna og hvetur því til þess að viðskiptavinum sé leiðbeint um þann kost að útbúa umsókn um afskráningu þannig (áður en ökutæki er skilað til úrvinnslu).
Móttaka umsókna á pappír
Ökutæki þarf að hafa verið skilað til úrvinnslu og móttaka þess staðfest af viðurkenndum úrvinnsluaðila (með útgáfu skilavottorðs). Ökutæki verður afskráð þótt á því hvíli opinber gjöld enda falla áfallin gjöld ekki niður við afskráningu.
Við móttöku skilavottorðs er gengið úr skugga um að það sé í frumriti, það sé rétt útfyllt og öll skilyrði skráningar uppfyllt. Ef umsóknin er ekki skráningarhæf (t.d. rangar upplýsingar, óljósar eða yfirstrikanir) skal vísa henni frá og leiðbeina viðskiptavini um það sem lagfæra þarf.
Fastanúmer (verksmiðjunúmer) og tegund: Tilgreina skal fastanúmer ökutækis (má líka tilgreina verksmiðjunúmer). Upplýsingar um tegund má vanta en ef tegund er tilgreind verður hún að passa við tilgreint fastanúmer.
Eigandi: Nafn og kennitala eiganda verður að passa saman. Ef það eru fleiri eigendur að ökutæki verða þeir allir að koma fram.
Dagsetning afskráningar: Skal vera móttökudagur umsóknar um afskráningu hjá þjónustuaðila. Þó má miða við skráningardag í öðru landi ef með fylgir staðfesting frá erlendum skráningaraðila á því.
Álestur ökumælis (þungaskattur): Eiganda ökutækis er skylt að láta framkvæma álestur, sé slíkur búnaður fyrir hendi í ökutækinu, áður en afskráning á sér stað. Fylla skal út eyðublað (RSK 10.33) og senda til RSK. Ef ekki er lesið af ökumæli við afskráningu áætlar RSK þungaskatt við næstu álagningu.
Álestur akstursmælis: Skal skráður á umsókn fyrir hreinorkubifreiðir og tengiltvinnbifreiðir.
Skráningarmerki: Merkt er við afdrif skráningarmerkja; (a) Afhent við afskráningu, og þá er þeim skilað inn og skal þeim þá fargað. (b) Þegar skráð í geymslu, og þá fargar geymsluaðili þeim við reglubundna hreinsun. (c) Týnd, þá um leið lýsir eigandi því yfir að merkin hafi glatast og að hann muni skila þeim til Samgöngustofu tafarlaust ef þau finnast. Sú ástæða á einnig við hafi þau verið flutt með ökutækinu úr landi.
Í umboði skal koma fram efni umboðs, fastanúmer ökutækis, nafn og kennitala umboðsmanns, undirritun umbjóðanda, tveir vitundarvottar, staður og dagsetning. Umbjóðandi, umboðsmaður og vitundarvottar skulu allir að vera orðnir 18 ára.
Skráningarhæfar umsóknir eru mótteknar, greiðslustimplaðar af þjónustuaðila og sendar daglega til Samgöngustofu. Réttaráhrif afskráninga miðast við skráningardag þ.e. afskráning tekur gildi þegar hún er skráð hjá Samgöngustofu. Mótteknar umsóknir sem berast Samgöngustofu til skráningar eru færðar í tímaröð. Fyrir rekjanleika skráir Samgöngustofa þjónustuaðila og móttökudag umsókna (eftir greiðslustimpli) í ökutækjaskrá.
Gjaldtaka
Samgöngustofa tekur ekki gjald fyrir umsókn um afskráningu.
Tölvuvinnsla
Engin tölvuvinnsla er hjá þjónustuaðila (útfyllt skilavottorð send til Samgöngustofu).