Handbók ökuprófa
4. Próflýsingar - bókleg próf
Í þessum kafla er fjallað um þær reglur sem gilda um mismunandi prófafyrirkomulag ásamt þeim prófreglum sem gilda og viðurlög við broti á þeim.
Efni kaflans
4.1.1 Undirbúningur
Prófdómari setur tölvu ásamt heyrnartólum á hvert borð
Prófdómari gengur úr skugga um að búið sé að hreinsa út af öllum tölvum
Miðað er við að ekki fleiri próftakar en 12 þreyti próf í einum hópi.
4.1.2 Lesið í próf
Prófdómari kannar mætingu og skilríki próftaka.
Prófdómari fullvissar sig um að nauðsynleg viðbótarprófgjöld hafi verið greidd og tekur við ökunámsbókum þegar við á og kannar vottanir ökuskóla og ökukennara um að próftaki hafi uppfyllt tilskilið bóknám.
Próftökum sem ekki hafa tilskilin gögn er vísað frá prófi en þó er reynt að leysa úr málum þeirra eftir því sem unnt er.
4.1.3 Fyrirmæli í prófstofu og fyrirlagning prófs
Prófdómari býður próftaka velkomna, þeir beðnir að skrá sig inn á próf með rafrænum skilríkjum og svo að slökkva á farsímum og koma fyrir við borð prófdómara ásamt töskum bókum, snjallúrum, snjalltækjum og öðrum gögnum.
Prófdómari skal, áður en próf hefst, kanna skilríki próftaka.
Prófdómari útskýrir uppbyggingu prófsins og kröfur um stigafjölda í samræmi við leiðbeiningar prófverkefna.
Prófdómari hvetur próftaka til að lesa spurningar vel og minnir próftaka á að spyrja sig ef eitthvað í prófinu er óljóst eða óskiljanlegt.
Prófdómari ítrekar við próftaka að geyma spurningar þar til í lokin sem þeir eru ekki vissir með.
Próftökum er sagt frá því að þeir geti séð villur sínar að prófi loknu til að læra af þeim.
Prófdómari býðst til þess að svara spurningum um fyrirkomulag prófsins.
Prófdómari óskar próftökum góðs gengis.
4.1.4 Á meðan á prófi stendur
Prófdómari fylgist með framvindu prófsins og tryggir að próftakar verði fyrir sem minnstu ónæði.
Prófdómari svarar spurningum próftaka er lúta að skilningi próftaka á prófspurningum en gætir þess jafnframt að sýna fyllsta hlutleysi í taláherslum og látbragði og gefi próftaka engar vísbendingar um rétt eða röng svör.
Prófdómari gætir þess að engin önnur gögn séu á borðum.
Prófdómari fer yfir prófgögn próftaka og fullvissar sig um að þau séu í lagi að svo miklu leyti sem hægt er (t.d. rétt gögn um próftaka með umsókn).
4.1.5 Úrvinnsla
Prófdómari merkir sérstaklega ökuskóla á niðurstöðulista ef hann kemur ekki fram á umsókn próftaka til að tryggja að hann verði rétt skráður í prófakerfið.
Þurfi próftaki að endurtaka prófið veitir prófdómari honum nauðsynlegar leiðbeiningar þar að lútandi.
4.1.6 Frágangur
Allar tölvur eru hreinsaðar eftir að prófi lýkur.
4.1.7 Annað
Of seint mætt í próf. Ef liðnar eru meira en 5 mínútur af próftíma þegar próftaki mætir skal honum að jafnaði vísað frá prófi. Ennfremur skal próftaka ekki hleypt úr prófstofu fyrr en minnst 15 mínútum eftir upphaf prófs. Komi próftaki of seint í prófið en þó innan 5 mínútna á hann ekki rétt í framlengdum próftíma.
Einstaklingspróf. Sjá leiðbeiningar um einstaklingspróf.
Prófsvindl. Verði próftaki uppvís af því að brjóta prófreglur telst prófið ekki staðið og skal honum vísað úr prófstofu og vísað í prófreglur Samgöngustofu.