Til baka í námsleit
Myndlistaskólinn í Reykjavík
Textílbraut
Auðkenni: 26-294-4-11
Hugvísindi og listir120 einingarHæfniþrep 4listnámsbraut
Nám á textílbraut er tveggja ára nám í textíl þar sem áhersla er lögð á að nemandinn kynnist öllum helstu aðferðum og tækni við textívinnu bæði gömlum og nýjum. Rík áhersla er lögð á hugmyndavinnu í tengslum við alla verklega vinnu nemandans og fræðilegt nám á brautinni miðar að því að dýpka fagþekkingu nemandans, auka víðsýni hans og getu til að setja verk sín í samhengi við samfélagið og list og hönnunarheiminn og efla kjark til frekari rannsókna og tilrauna með miðilinn. Að loknu námi getur nemandi sótt um að ljúka BA gráðu við listaháskóla og er þá undir viðkomandi háskóla komið hvort og að hve miklu leyti námið er metið til háskólaeininga.