Fara beint í efnið
Icelandic coat of arms
Icelandic coat of arms

Framhaldsskólanám

Til baka í námsleit
Myndlistaskólinn í Reykjavík logo

Myndlistaskólinn í Reykjavík

Keramikbraut

Auðkenni: 26-292-4-11

Hugvísindi og listir120 einingarHæfniþrep 4listnámsbraut

Nám á keramikbraut er tveggja ára nám í leir og keramiki þar sem áhersla er lögð á að nemandinn kynnist öllum helstu aðferðum og tækni við leirvinnu, bæði gömlum og nýjum. Rík áhersla er lögð á hugmyndavinnu í tengslum við alla verklega vinnu nemandans og fræðilegt nám á brautinni miðar að því að dýpka fagþekkingu nemandans, auka víðsýni hans og getu til að setja verk sín í samhengi við samfélagið og listheiminn og efla kjark til frekari rannsókna og tilrauna með miðilinn. Að loknu námi getur nemandi sótt um að ljúka BA gráðu við listaháskóla og er þá undir viðkomandi háskóla komið hvort og að hve miklu leyti námið er metið til háskólaeininga.

Upplýsingar um námið

Framhaldsskólanám

Stjórnarráð Íslands

Mennta- og barnamálaráðuneytið

www.mrn.is

mrn@mrn.is