Til baka í námsleit
Eftirfarandi skólar kenna þessa útfærslu af brautinni
Nám til iðnmeistara
Auðkenni: 20-389-4-11
Verkfræði, framleiðsla og mannvirkjagerð38 einingarHæfniþrep 4iðnmeistaranám
Iðnmeistaranám nær til náms í stjórnunar- og rekstrargreinum ásamt fagtengdu námi þar sem það á við. Námið miðar að því að gera nemendur hæfa til að reka fyrirtæki skv. 10. grein iðnaðarlaga nr. 42/1978 og vera færa um að sjá um leiðsögn og kennslu iðnnema í eigin iðngrein.
Hver maður getur leyst til sín meistarabréf ef hann fullnægir skilyrðum 3. gr. laganna, hefur lokið sveinsprófi, unnið síðan undir stjórn meistara í iðngrein sinni eitt ár minnst og jafnframt lokið meistaraprófi í iðninni frá meistaraskóla. Meistarabréf veitir meistara leyfi til að reka þá iðngrein, er meistarabréf hans tekur til.